Helgi Helgason (Birkihlíð)
Helgi Helgason sjómaður fæddist 18. ágúst 1964.
Foreldrar hans Helgi Gestsson, f. 26. apríl 1938, og Árný Margrét Agnars Jónsdóttir, f. 8. febrúar 1942, d. 1. október 2019.
Börn Árnýjar og Helga:
1. Torfhildur Helgadóttir fiskverkakona, lyftarastjóri, f. 1959. Fyrrum maður hennar var Óskar Pétur Friðriksson, f. 19. júní 1958. Sambúðarkona hennar Viktoryia Salnytska frá Kænugarði (Kyjiv, Kief) í Úkraínu.
2. Agnar Helgason bifreiðaviðgerðamaður, f. 19. ágúst 1960. Barnsmóðir hans Auður Björgvinsdóttir, f. 4. nóvember 1960. Kona hans Kathleen Valborg Clifford, f. 28. júlí 1961 í Reykjavík.
3. Brynja Helgadóttir fiskverkakona, starfsmaður Hraunbúða, f. 17. júlí 1961, d. 11. ágúst 2024. Barnsfaðir hennar Sveinn Símonarson, f. 11. október 1962.
4. Berglind Helgadóttir fiskverkakona, starfsmaður Hraunbúða, býr nú í Hveragerði, f. 28. janúar 1963. Maður hennar Jóhann Hjaltalín Stefánsson.
5. Helgi Helgason sjómaður, f. 18. ágúst 1964. Fyrrum kona hans Dagrún Deirdre Georgsdóttir.
6. Ingólfur Helgason iðnnemi, f. 7. maí 1970 í Eyjum, d. 24. september 1988.
Þau Dagrún giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Helgi býr í Rvk,
I. Fyrrum kona Helga er Dagrún Deirdre Georgsdóttir.
Börn þeirra:
1. Hafdís Bettý Helgadóttir, f. 22. janúar 1987.
2. Særún Ósk Helgadóttir, f. 29. október 1989.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Helgi.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.