Agnar Helgason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Agnar Helgason bílaviðgerðamaður fæddist 19. ágúst 1960.
Foreldrar hans Helgi Gestsson, f. 26. apríl 1938, og Árný Margrét Agnars Jónsdóttir, f. 8. febrúar 1942, d. 1. október 2019.

Börn Árnýjar og Helga:
1. Torfhildur Helgadóttir fiskverkakona, lyftarastjóri, f. 1959. Fyrrum maður hennar var Óskar Pétur Friðriksson, f. 19. júní 1958. Sambúðarkona hennar Viktoryia Salnytska frá Kænugarði (Kyjiv, Kief) í Úkraínu.
2. Agnar Helgason bifreiðaviðgerðamaður, f. 19. ágúst 1960. Barnsmóðir hans Auður Björgvinsdóttir, f. 4. nóvember 1960. Kona hans Kathleen Valborg Clifford, f. 28. júlí 1961 í Reykjavík.
3. Brynja Helgadóttir fiskverkakona, starfsmaður Hraunbúða, f. 17. júlí 1961. Barnsfaðir hennar Sveinn Símonarson, f. 11. október 1962.
4. Berglind Helgadóttir fiskverkakona, starfsmaður Hraunbúða, býr nú í Hveragerði, f. 28. janúar 1963. Maður hennar Jóhann Hjaltalín Stefánsson.
5. Helgi Helgason sjómaður, f. 18. ágúst 1964. Kona hans Dagrún Deirdre Georgsdóttir.
6. Ingólfur Helgason iðnnemi, f. 7. maí 1970 í Eyjum, d. 24. september 1988.

Agnar eignaðist barn með Auði 1981.
Þau Kathleen Valborg giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.

I. Barnsmóðir Agnars er Auður Björgvinsdóttir, f. 4. nóvember 1960.
Barn þeirra:
1. Arnar Jón Agnarsson, f. 31. janúar 1981.

II. Kona Agnars er Kathleen Valborg Clifford, f. 28. júlí 1961.
Börn þeirra:
2. Andri Már Agnarsson, f. 8. mars 1992.
3. Árný Margrét Agnarsdóttir, f. 23. september 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.