Helga Hallbergsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helga Jósefína Hallbergsdóttir, með BA-próf í íslensku og sagnfræði, MA-próf í menningarmiðlun, forstöðumaður Byggðarsafns Vestmannaeyja, síðast starfsmaður Eldheima, fæddist 3. júní 1952 á Steinsstöðum.
Foreldrar hennar voru Hallberg Halldórsson bifreiðastjóri, kaupmaður, f. 4. maí 1910 í Borgarkoti á Skeiðum, Árn., d. 24. september 1982, og síðari kona hans Irma Pöhls Halldórsson af þýskum ættum, húsfreyja, f. 12. mars 1929, d. 18. apríl 2017.

Börn Þuríðar og Hallbergs:
1. Halldóra Sigríður Hallbergsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 11. desember 1932, d. 8. september 2016.
2. Jenný Hallbergsdóttir húsfreyja, f. 15. september 1935 á Mosfelli, d. 10. mars 1995.
Börn Hallbergs og Irmu Pöhls:
3. Helga Jósefína Hallbergsdóttir, BA-próf í íslensku og sagnfræði, M.A-próf í menningarmiðlun, forstöðumaður Byggðasafnsins í Eyjum, f. 3. júní 1952 á Steinsstöðum.
4. Ragnar Werner Hallbergsson tölvufræðingur, f. 21. maí 1957 á Steinsstöðum.
Barn Hallbergs og Bjarneyjar Elísabetar Narfadóttur:
5. Hörður Hallbergsson rafvirki, yfirverkstjóri hjá Rafveitu Hafnarfjarðar, f. 5. júní 1932 í Hafnarfirði, d. 20. desember 2016.
Barn Þuríðar og Karls Stefáns Daníelssonar:
6. Sigríður Kristín Karlsdóttir húsfreyja, f. 28. apríl 1929.

Þau Jónas giftu sig, eignuðust ekki börn. Þau skildu.
Þau Þorsteinn eru í fjarbúð, eignuðust ekki börn saman.
Helga býr við Brimhólabraut 24.

I. Fyrrum maður Helgu er Jónas Sigurðsson, kennari, f. 25. júní 1951. Foreldrar hans Sigurður Jóhann Halldórsson, f. 24. mars 1907, d. 20. janúar 1980, og Jónasína Sigríður Jónasdóttir, f. 5. nóvember 1911, d. 16. maí 1980.

II. Fjarbúðarmaður Helgu er Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir á Selfossi, f. 3. apríl 1947. Foreldrar hans Ólafur Þorsteinsson, f. 8. maí 1916, d. 22. mars 1991, og Guðbjörg Einarsdóttir, f. 29. apríl 1921, d. 8. desember 2015.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.