Helena Ósk Magnúsdóttir
Helena Ósk Magnúsdóttir húsfreyja, tollfulltrúi fæddist 15. mars 1986.
Foreldrar hennar Magnús Ríkarðsson, skipstjóri frá Ólafsvík, f. 20. ágúst 1964, og kona hans Anna Hulda Lárusdóttir Long, húsfreyja, f. 17. maí 1963 í Eyjum.
Börn Önnu og Magnúsar:
1. Helena Ósk Magnúsdóttir skrifstofumaður, f. 15. mars 1986. Sambúðarmaður hennar Gústaf Hrafn Gústafsson.
2. Sólveig Rut Magnúsdóttir skrifstofumaður, f. 19. ágúst 1888. Maður hennar Ellert Scheving Pálsson.
3. Ríkarð Magnússon stýrimaður, f. 15. september 1990. Kona hans Brynja Rut Halldórsdóttir.
4. Unnur Ástrós Magnúsdóttir lyfjafræðingur, f. 21. desember 1999. Sambúðarmaður hennar Aron Máni Símonarson.
Þau Gústaf Hrafn hófu sambúð, hafa eignast tvö börn. Þau búa í Kópavogi.
I. Sambúðarmaður Helenu Óskar er Gústaf Hrafn Gústafsson úr Rvk, sálfræðingur, f. 2. desember 1988. Foreldrar hans Gústaf Gústafsson, f. 24. febrúar 1959, d. 22. febrúar 2013, og Hrefna Guðrún Benedikta Þórarinsdóttir, f. 6. febrúar 1952, d. 10. maí 2015.
Börn þeirra:
1. Leó Örn Gústafsson, f. 1. júlí 2018.
2. Lísa Lóa Gústafsdóttir, f. 14. nóvember 2023.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Helena Ósk.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.