Hans Anders Þorsteinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hans Anders Þorsteinsson.

Hans Anders Þorsteinsson bifreiðastjóri fæddist 6. september 1918 á Geithálsi og lést 3. júní 2005.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Brynjólfsson verkamaður, f. 7. nóvember 1883 á Syðri-Kvíhólma u. Eyjafjöllum, síðast á Lækjarmóti í Flóa, d. 17. febrúar 1963, og kona hans Lára Jónsdóttir húsfreyja, f. 13. desember 1885 í Fíflholti í V.-Landeyjum, síðast í Ásum við Skólaveg 47, d. þar 23. júlí 1933.

Börn Láru og Þorsteins:
1. Guðrún Halla Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 9. september 1911, d. 28. júní 1987.
2. Hans Anders Þorsteinsson, f. 6. september 1918, d. 3. júní 2005.

Hans varð bifreiðastjóri hjá Þrótti í Reykjavík, vann um skeið við stjórnun þungavinnuvéla, bílaviðgerðir og akstur langferðabifreiða í Mosfellssveit. Hann vann síðar hjá Reykjavíkurborg.

I. Kona Hans var Elín Sigurbergsdóttir, f. 17. janúar 1921, d. 1. mars 1992. Foreldrar hennar voru Sigurbergur Elísson, f. 9. ágúst 1899, d. 2. október 1969, og Valdís Gíslína Bjarnadóttir, f. 15. október 1902, d. 4. febrúar 1982.
Börn þeirra:
1. Sigurbergur Hansson vörubílstjóri, f. 8. apríl 1942, d. 19. október 2021. Kona hans Kolbrún Kjartansdóttir.
2. Valdís Hansdóttir húsfreyja, f. 27. maí 1945. Maður hennar Sveinjón Ingvar Ragnarsson.
3. Þorsteinn Hansson verkstjóri, f. 14. janúar 1948. Fyrrum kona hans Sigurrós Einarsdóttir.
4. Óskar Hansson, f. 20. janúar 1949 bifreiðastjóri. Fyrri kona hans Dagbjört Guðmundsdóttir. Síðari kona hans Guðrún Benjamínsdóttir.
5. Elís Hansson birgðavörður, f. 18. mars 1950. Kona hans Fanney Pálsdóttir.

II. Kona Hans var Dorothea Guðrún Fahning (Dorothea Lambdon), kom frá Þýskalandi, f. 19. apríl 1920, d. 10. júlí 2010. Móðir hennar var Margrét Þorvaldsdóttir Fahning húsfreyja, f. 1. maí 1895, d. 19. apríl 1969.
Barn þeirra:
1. Lára Margrét Hansdóttir, bjó í Ástralíu, f. 18. júlí 1938, d. 2010.
2. Lúðvík Fahning Hansson, f. 17. maí 1940 í Reykjavík, d. 11. september 2017. Kona hans Margrét Oddný Guðmundsdóttir.

III. Barnsmóðir Hans var Brynhildur Kjartansdóttir kennari, f. 17. júní 1920, d. 25. júní 2007.
Barn þeirra:
8. Erla Elín Hansdóttir framhaldsskólakennari, f. 17. ágúst 1952.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Maður og bíll : vörubílstjórafélagið Þróttur : saga og félagatal 1931-1987. Ingólfur Jónsson. Vörubílstjórafélagið Þróttur.
  • Morgunblaðið 21. september 2017. Minning Lúðvíks Hanssonar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.