Þorsteinn Brynjólfsson (Ásum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þorsteinn Brynjólfsson.

Þorsteinn Brynjólfsson í Ásum við Skólaveg 47, sjómaður, verkamaður fæddist 7. nóvember 1883 á Syðri-Kvíhólma u. Eyjafjöllum og lést 17. febrúar 1963.
Foreldrar hans voru Brynjólfur Gíslason bóndi, f. 7. janúar 1844, d. 10. mars 1892 og kona hans Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. 11. mars 1858, d. 23. ágúst 1910.

Börn Guðrúnar og Brynjólfs - í Eyjum:
1. Þorsteinn Brynjólfsson, f. 7. nóvember 1883, d. 17. febrúar 1963.
2. Guðlaugur Brynjólfsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 23. júlí 1890, d. 30. desember 1972.

Þorsteinn var með foreldrum sínum í Syðri-Kvíhólma 1890, en faðir hans lést er Þorsteinn var á níunda árinu. Hann var vinnuhjú í Fljótsdal í Fljótshlíð 1901.
Þau Lára giftu sig 1908, fluttu til Eyja 1908, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Batavíu við Heimagötu 8 1910, á Geithálsi við Herjólfsgötu 2 við fæðingu Guðrúnar Höllu 1911 og fæðingu Hans Anders 1918, í Þorlaugargerði 1920, í Ásum við Skólaveg 47 1927 og síðan.
Lára lést í Ásum 1933.
Þorsteinn flutti úr bænum, lést á Lækjarmóti í Flóa 1963.

I. Kona Þorsteins, (1908), var Lára Jónsdóttir frá Fíflholti í V.-Landeyjum, húsfreyja, f. þar 13. desember 1885, d. 23. júlí 1933 í Ásum.
Börn þeirra:
1. Guðrún Halla Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 9. september 1911, d. 28. júní 1987.
2. Hans Anders Þorsteinsson, f. 6. september 1918, d. 3. júní 2005.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.