Hallgrímur Tryggvason (vélvirkjameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hallgrímur Tryggvason vélvirkja- og plötusmíðameistari fæddist 9. nóvember 1952 í Gíslholti við Landagötu 20.
Foreldrar hans Tryggvi Ágúst Sigurðsson vélstjóri, f. 16. febrúar 1931, og kona hans Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, verslunarmaður, f. 22. júlí 1931, d. 30. júní 2018.

Börn Sigríðar og Tryggva:
1. Ólafur Kristinn Tryggvason, verkfræðingur, f. 30. mars 1951. Kona hans Björg Pétursdóttir.
2. Hallgrímur Tryggvason, f. 9. nóvember 1952. Kona hans Ásdís Sævaldsdóttir.
3. Sigurður Hjálmar Tryggvason, f. 20. janúar 1956, d. 10. febrúar 2004.
4. Klara Tryggvadóttir, f. 14. september 1961. Maður hennar Vilhelm Ágúst Steinsson.
5. Kristný Sigurbjörg Tryggvadóttir, f. 20. mars 1966. Maður hennar Grétar Þór Sævaldsson.

Hallgrímur var með foreldrum sínum.
Hann lærði vélvirkjun og plötusmíði og vann við iðnina. Hann var einn af eigendum Vélsmiðjunnar Völundar. Hann vann þar og eftir samruna í Skipalyftunni. Hann varð einn af eigendum Vélsmiðjunnar Þórs.
Þau Ásdís giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa við Túngötu 26.

I. Kona Hallgríms er Ásdís Sævaldsdóttir húsfreyja, fjármálastjóri, f. 5. ágúst 1962.
Börn þeirra:
1. Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri við grunnskóla í Eyjum, f. 17. desember 1981. Maður hennar Páll Þorvarður Hjarðar.
2. Halla Björk Hallgrímsdóttir húsfreyja, fjármálastjóri í Eyjum, f. 5. september 1985. Maður hennar Karl Haraldsson.
3. Sævald Páll Hallgrímsson framkvæmdastjóri, f. 27. ágúst 1986. Kona hans Fjóla Ríkharðsdóttir.
4. Einar Ottó Hallgrímsson sjómaður, stýrimaður í Eyjum, f. 26. september 1992. Kona hans Halla Björk Snædal Jónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.