Hafþór Örn Kristófersson
Hafþór Örn Kristófersson, sölumaður, kerfisstjóri fæddist 25. október 1983 í Rvk.
Foreldrar hans Kristófer Þór Guðlaugsson, skipstjóri, f. 24. mars 1950, d. 11. nóvember 2023, og kona hans Þórunn Þorbjörnsdóttir, húsfreyja, f. 16. júlí 1951.
Börn Þórunnar og Kristófers Þórs:
1. Anna Kristín Kristófersdóttir, f. 5. febrúar 1970 í Rvk. Maður hennar Viktor Þór Reynisson.
2. Guðlaugur Kristinn Kristófersson, f. 12. júlí 1971. Fyrrum kona hans Hafrún Sigríður Ingadóttir. Fyrrum kona hans Valgerður Kristjánsdóttir. Sambúðarkona hans Elín Arinbjörnsdóttir.
3. Lilja Rós Kristófersdóttir, f. 8. september 1981. Maður hennar Miquel Thompson.
4. Hafþór Örn Kristófersson, f. 25. október 1983. Kona hans Anna Karen K. Sigvaldadóttir.
Þau Anna Karen giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Keflavík.
I. Kona Hafþórs er Anna Karen K. Sigvaldadóttir, húsfreyja, f. 8. febrúar 1983. Foreldrar hennar Sigvaldi Kaldalóns Jónsson, f. 10. mars 1954, og Helga Kristinsdóttir, f. 23. nóvember 1957.
Börn þeirra:
1. Sigvaldi Rafn K. Hafþórsson, f. 28. september 2005 í Rvk.
2. Rannveig Unnur K. Hafþórsdóttir, f. 8. febrúar 2009 í Eyjum.
3. Kristófer Úlfar K. Hafþórsson, f. 10. maí 2014
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Hafþór.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.