Hólmfríður Þórarinsdóttir (Þrúðvangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hólmfríður Þórarinsdóttir.

Hólmfríður Þórarinsdóttir á Þrúðvangi, húsfreyja víða í S-Þingeyjarsýslu, síðast í Eyjum fæddist 23. júní 1861 og lést 6. desember 1937.
Foreldrar hennar voru Þórarinn Þórarinsson bóndi, hreppstjóri á Grásíðu í Kelduhverfi, f. 14. febrúar 1814, d. 16. mars 1902, og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. mars 1831, d. 30. október 1891.

Hólmfríður var enn með foreldrum sínum 1880.
Þau Hólmfríður voru bændur á Víkingavatni í Kelduhverfi í S-Þing. 1888-1892, í Kílakoti þar 1892-1898, á Grásíðu þar 1898-1900, Bakka þar 1900-1905 og í Garði 1 þar 1905-1906, Hliðskjálfi í Húsavíkursókn 1910, á Kirkjubæ þar 1920.
Hólmfríður fluttist til Eyja 1924 með börnum sínum, Þórarni og Kristjönu, en Sigurður sonur hennar hafði komið þangað 1920 og Óli Jón maður hennar kom síðar.
Hún var í Þingholti 1924 með Sigurði, Kristjönu og Þórarni.
Sigurður byggði Þrúðvang 1926 með aðstoð Þórarins bróður síns og fleiri.
Hólmfríður bjó síðan á Þrúðvangi, (Skólavegi 22), var þar 1927 með Kristjönu og sonum sínum Sigurði og Þórarni. Óli Jón maður hennar kom til Eyja, dvaldi hjá þeim á Þrúðvangi, en dó 1929. Hólmfríður var skráð húsfreyja á Þrúðvangi 1930, var þar með Kristjönu ráðskonu og Sigurði húsbónda. Þar var hún 1934 með Sigurði og Kristjönu.
Hólmfríður lést 1937.

Maður Hólmfríðar var Óli Jón Kristjánsson bóndi, f. 23. maí 1866, d. 31. janúar 1929.
Börn þeirra:
1. Árni Ólason (Árni Óla) rithöfundur, blaðamaður, f. 2. desember 1888, d. 5. júní 1979.
2. Kristjana Óladóttir á Þrúðvangi, bæjarritari í Eyjum, f. 23. mars 1891, d. 6. mars 1966.
3. Þórarinn Ólason trésmiður, skrifstofumaður á Hoffelli, f. 1. mars 1893, d. 19. október 1958.
4. Kristján Ólason pakkhúsmaður á Húsavík, skáld, f. 27. júlí 1894, d. 24. október 1975.
5. Guðbjörg Óladóttir húsfreyja, kaupmaður á Húsavík, f. 26. febrúar 1896, d. 24. október 1960.
6. Sigurður Ólason forstjóri, f. 25. ágúst 1900, d. 6. júní 1979.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættir Þingeyinga II. Indriði Indriðason. Helgafell 1976.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.