Gunnhildur Helgadóttir (Staðarhóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnhildur Svava Helgadóttir frá Staðarhóli, húsfreyja, móttökuritari fæddist 10. apríl 1935 á Heiði við Sólhlíð 19.
Foreldrar hennar voru Helgi Jónatansson frá Efsta-Bóli í Önundarfirði, kaupmaður, útgerðarmaður, útflytjandi, f. 1. apríl 1887, d. 1. október 1950, og kona hans Ellen Marie Nielsine Torp Steffensen Jónatansson húsfreyja, trúboði frá Kalundborg í Danmörku, f. 2. mars 1899, d. 17. nóvember 1941.

Börn Helga og Ellen Marie:
1. Helga Signý Helgadóttir, f. 14. september 1932, d. 24. febrúar 2020.
2. Ása Sigríður Helgadóttir , f. 18. mars 1930, d. 5. júlí 2015.
3. Gunnhildur Svava Helgadóttir, f. 10. apríl 1935.

Gunnhildur var með foreldrum sínum, á Heiði við Sólhlíð 19, á Haukabergi við Vestmannabraut 11 og á Staðarhóli.
Móðir hennar lést, er Gunnhildur var á sjöunda árinu. Hún var með föður sínum, en hann lést, er hún var á 15. árinu.
Gunnhildur lauk gagnfræðaprófi í Héraðsskólanum í Skógum 1952, lauk námi í Húsmæðraskólanum í Reykjavík 1955.
Hún var kaupakona á Þorvaldseyri u. Eyjafjöllum 1952, kom til Eyja í nóvember á því ári. Hún vann hjá Hótel HB í 18 mánuði, var afgreiðslumaður hjá Kjöt og grænmeti í Reykjavík í 2 ár, vann á skrifstofu SÍS í eitt ár. Þá fór hún í ferðalag til Danmerkur og Þýskalands. Síðan vann hún á skrifstofu hjá Magnúsi Kjaran stórkaupmanni í eitt og hálft ár. Hún var að síðustu móttökuritari á Borgarspítalanum 1985-2002.
Gunnhildur söng með kórum, var félagi í Kvenfélaginu Heimaey í Reykjavík.
Þau Bogi giftu sig 1961, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Stóragerði, Sólheimum, Álfheimum og búa nú við Lækjarsmára í Kópavogi.

I. Maður Gunnhildar, (3. ágúst 1961), er Bogi Vignir Þórðarson frá Hellu á Rangárvöllum, loftskeytamaður, f. 16. september 1936. Foreldrar hans voru Þórður Bogason bóndi, verkamaður, kennari, gjaldkeri, oddviti, f. 31. mars 1902 í Varmadal á Rangárvöllum, d. 29. nóvember 1987, og kona hans Kristín Sigfúsdóttir Thorarensen frá Hróarsholti í Flóa, húsfreyja, f. 11. október 1910, d. 2. janúar 1998.
Börn þeirra:
1. Þórður Bogason lögmaður, f. 26. júní 1963. Kona hans Rannveig Guðjónsdóttir.
2. Helgi Bogason rekstrarfræðingur, f. 18. október 1968. Kona hans Estella Dagmar Ottósdóttir Björnsson.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gunnhildur.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.