Gunnar Tryggvi Ómarsson
Gunnar Tryggvi Ómarsson stýrimaður, vélstjóri fæddist 27. desember 1978.
Foreldrar hans Ómar Haraldsson, vélfræðingur, vélstjóri, f. 14. október 1946, og kona hans Ásthildur Gréta Gunnarsdóttir, húsfreyja, f. 15. júní 1946.
Börn Ásthildar og Ómars:
1. Ágúst Óðinn Ómarsson skipstjóri á Drangey SK1, f. 21. september 1969. Maki hans er Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir.
2. Vigdís Ósk Ómarsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, f. 29. ágúst 1971. Maki hennar er Hjörtur Sævar Guðmundsson.
3. Sigrún Alda Ómarsdóttir húsfreyja, kaupmaður, MA í menningarstjórnun. Hún rekur eigin verslun á Skólavegi 6, f. 12.maí 1976, gift Sveini Ásgeirssyni stýrimanni.
4. Gunnar Tryggvi Ómarsson stýrimaður, fæddur 27. desember 1978.
5. Ásthildur Tinna Ómarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 24.maí 1981, býr í Danmörku. Maður hennar er Paw Petersen.
Gunnar er sjómaður á Grundarfirði, en á lögheimili á Skagaströnd.
Hann eignaðist barn með Karen Önnu 1998.
Þau Ásta Ýr giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
I. Barnsmóðir Gunnars Tryggva er Karen Anna Sveinsdóttir frá Eyjum, f. 13. október 1982.
Barn þeirra:
1. Telma Rut Óskarsdóttir, f. 12. maí 1998.
II. Fyrrum kona Gunnars Tryggva er Ásta Ýr Ásgeirsdóttir frá Skagaströnd, f. 9. október 1978. Foreldrar hennar Ásgeir Guðni Axelsson, f. 7. maí 1942, d. 8. júní 2011, og Sveinfríður Sigrún Guðmundsdóttir, f. 16. desember 1947.
Börn þeirra:
2. Óðinn Örn Gunnarsson, f. 31. ágúst 2006.
3. Aníta Ýr Gunnarsdóttir, f. 14. maí 2010.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Gunnar Tryggvi.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.