Sigrún Alda Ómarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Alda Ómarsdóttir, húsfreyja, MA í menningarstjórnun, kaupmaður, rekur verslunina Litla Skvísubúðin, fæddist 12. maí 1976.
Foreldrar hennar Ómar Haraldsson, vélfræðingur, vélstjóri, f. 14. október 1946, og kona hans Ásthildur Gréta Gunnarsdóttir, húsfreyja, f. 15. júní 1946.

Börn Ásthildar og Ómars:
1. Ágúst Óðinn Ómarsson skipstjóri á Drangey SK1, f. 21. september 1969. Maki hans er Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir.
2. Vigdís Ósk Ómarsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, f. 29. ágúst 1971. Maki hennar er Hjörtur Sævar Guðmundsson.
3. Sigrún Alda Ómarsdóttir húsfreyja, kaupmaður, MA í menningarstjórnun. Hún rekur eigin verslun á Skólavegi 6, f. 12.maí 1976, gift Sveini Ásgeirssyni stýrimanni.
4. Gunnar Tryggvi Ómarsson stýrimaður, fæddur 27. desember 1978.
5. Ásthildur Tinna Ómarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 24.maí 1981, býr í Danmörku. Maður hennar er Paw Petersen.

Þau Sveinn giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Höfðaveg 18.

I. Maður Sigrúnar Öldu er Sveinn Ásgeirsson sjómaður, stýrimaður, f. janúar 1974.
Börn þeirra:
1. Guðfinna Dís Sveinsdóttir, f. 1. ágúst 2001.
2. Gunnar Bjarki Sveinsson, f. 3. janúar 2004.
3. Ómar Smári Sveinsson, f. 30. júlí 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.