Gunnar Andersen (Sandprýði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Andersen Húnbogason, plötu- og ketilsmíðameistari, trésmiður fæddist 26. nóvember 1957 í Sandprýði.
Foreldrar hans Húnbogi Þorkelsson, vélvirkjameistari, f. 7. janúar 1916, d. 9. apríl 2002, og Guðrún Svanlaug Andersen, húsfreyja, f. 2. mars 1921.

Börn Guðrúnar og Húnboga:
1. Jóhann Pétur Andersen Húnbogason, f. 10. október 1944 á Sólbakka.
2. Þorkell Húnbogason Andersen, f. 24. apríl 1946 á Sólbakka.
3. Valur Andersen Húnbogason, f. 27. ágúst 1947 í Sandprýði.
4. Eva Andersen Húnbogadóttir, f. 1. nóvember 1948 í Sandprýði.
5. Bogi Andersen Húnbogason, f. 27. febrúar 1956 í Sandprýði.
6. Gunnar Andersen Húnbogason, f. 26. nóvember 1957.
7. Arnar Andersen Húnbogason, f. 14. október 1960.

Þau Guðrún Halla giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Stapaveg 2. Þau skildu.
Þau Elísasbet Ruth giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Stapaveg 2.

I. Fyrrum kona Gunnars er Guðrún Halla Einarsdóttir frá Reynishólum í Mýrdal, húsfreyja, f. 8. maí 1965. Foreldrar hennar Einar Ársælsson, frá Reynishólum í Mýrdal, bóndi, f. 25. júlí 1925, d. 20. ágúst 1993, og kona hans Anna Valdimarsdóttir, húsfreyja, f. 16. nóvember 1936 í Barðastrandarsýslu.
Börn þeirra:
1. Stefnir Gunnarsson, f. 25. júlí 1986.
2. Mjölnir Gunnarsson, f. 1. september 1988.

II. Kona Gunnars er Elísabet Ruth Guðmundsdóttir, frá Selfossi, húsfreyja, bókasafnsfræðingur, f. 6. nóvember 1962. Foreldrar hennar Guðmundur Bjarnason, f. 31. desember 1917, d. 19. maí 2013, og Guðrún Magnúsdóttir, f. 29. júlí 1931, d. 2. desember 2017.
Börn þeirra:
3. Guðrún Svanlaug Andersen, f. 17. október 1994.
4. Víðir Gunnarsson, f. 11. nóvember 1999.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gunnar.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.