Gunnar Þ. Jónatansson (Stórhöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Þórarinn Jónatansson frá Stórhöfða, dúklagningameistari fæddist 21. nóvember 1899 að Garðakoti í Mýrdal og lést 28. janúar 1999.
Foreldrar hans voru Jónatan Jónsson vitavörður í Stórhöfða, f. 3. október 1857, d. 10. apríl 1939, og kona hans Guðfinna Þórðardóttir húsfreyja, f. 4. september 1875, d. 30. nóvember 1959.

Börn Jónatans og Guðfinnu voru:
1. Sigurður Valdimar, f. 3. desember 1897 að Gerðakoti í Mýrdal, d. 4. maí 1956.
2. Guðjón Oktavíus, f. 23. október 1898, d. 10. júní 1900.
3. Gunnar Þórarinn, f. 21. nóvember 1899 að Garðakoti, d. 28. janúar 1999.
4. Sigríður, f. 6. nóvember 1903 að Garðakoti, d. 16. mars 1994.
5. Hjalti Guðmundur, f. 22. febrúar 1910 í Reykjavík, d. 29. október 2004.
Barn Jónatans og Guðrúnar Eiríksdóttur frá Vilborgarstöðum, f. 21. maí 1848, d. 25. nóvember 1927 var
5. Guðný Jónatansdóttir, f. 4. október 1881. Hún fór til Utah með móður sinni 1886.
Barn Jónatans og Helgu Jónsdóttur, síðar húsfreyju á Brekku, f. 4. mars 1864, d. 17. janúar 1946, síðar konu Kristjáns Gunnarssonar:
6. Jónatan Guðni Jónatansson bóndi á Litlu-Heiði í Mýrdal, f. 30. apríl 1894, d. 6. júlí 1987.
Gunnar var með foreldrum sínum í Garðakoti til 1908, í Reykjavík 1908-1910, á Stórhöfða frá 1910 uns hann flutti til Reykjavíkur 1931, bjó þar og á Vegamótum á Seltjarnarnesi.

Gunnar vann við veggfóðrun og dúklagningar og hafði meistararéttindi í greininni.
Hann lést 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.