Guðrún Vigfúsdóttir (Holti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Vigfúsdóttir frá Holti, húsfreyja, hattagerðarkona í Danmörku fæddist 27. september 1901 á Vesturhúsum og lést 30. apríl 1957.
Foreldrar hennar voru Vigfús Jónsson frá Túni, formaður og útgerðarmaður í Holti, f. 14. júní 1872 í Túni, d. 26. apríl 1943, og fyrri kona hans Guðleif Guðmundsdóttir frá Vesturhúsum, húsfreyja, f. þar 11. október 1879, d. 19. ágúst 1922.

Börn Guðleifar og Vigfúsar:
1. Guðrún húsfreyja, f. 27. september 1901. Hún giftist dönskum manni og bjó í Danmörku.
2. Sigríður Dagný húsfreyja, f. 15. september 1903, d. 5. október 1994.
3. Guðmundur skipstjóri og útgerðarmaður, f. 10. febrúar 1906, d. 6. október 1997.
4. Jón vélstjóri og útgerðarmaður, f. 22. júlí 1907, d. 9. september 1999.
5. Þórdís húsfreyja, f. 29. júlí 1912, d. 15. desember 2004.
6. Guðlaugur útgerðarmaður, f. 16. júlí 1916, d. 27. apríl 1989.
7. Axel (Púlli) öryrki, f. 16. október 1918, d. 16. október 2001.
8. Barn, sem dó nokkru eftir fæðingu.
Börn Vigfúsar og síðari konu hans Valgerðar Jónsdóttur:
9. Þorvaldur Örn húsgagnasmíðameistari, f. 24. janúar 1929, d. 16. september 2002.
10. Guðleif húsfreyja, f. 13. júlí 1926, d. 27. september 2013.
Dóttir Valgerðar:
11. Þórdís Hansdóttir Erlendsson, f. 1. maí 1915, d. 9. maí 2005.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, á Vesturhúsum og í Holti. Hún var verslunarmær í Langa-Hvammi 1930 hjá Sigríði systur sinni og Eiði Jónssyni.
Guðrún flutti til Danmerkur, var hattagerðarkona og rak verslun með manni sínum.
Hún giftist Aage og bjó í Hjörring í Danmörku.
Guðrún lést 1957.

I. Maður Guðrúnar var Aage Christiansen kaupmaður. Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.