Guðrún Tómasdóttir (Kanastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Geir Ísleifsson og Guðrún Tómasdóttir.

Guðrún Tómasdóttir frá Reyðarvatni á Rangárvöllum, húsfreyja fæddist þar 26. nóvember 1883 og lést 4. maí 1978 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Tómas Böðvarsson bóndi á Reyðarvatni, f. þar 24. júlí 1854, d. þar 6. ágúst 1935, og kona hans Guðrún Árnadóttir húsfreyja frá Reynifelli á Rangárvöllum, f. þar 2. ágúst 1857, d. 4. maí 1931.

Systir Guðrúnar í Eyjum var
1. Ingibjörg Tómasdóttir kaupkona, f. 22. ágúst 1891, d. 18. september 1952.
Mágur Guðrúnar í Eyjum var
2. Magnús Ísleifsson húsasmíðameistari í London, f. 8. ágúst 1875, d. 25. ágúst 1949.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Geir giftu sig 1906, eignuðust sex börn, en misstu fyrsta barn sitt á fjórða mánuði þess. Þau bjuggu á Kanastöðum í A.–Landeyjum 1906-1923, en þá lést Geir. Guðrún bjó þar til 1924.
Hún flutti til Eyja með börn sín 1924, byggði húsið Kanastaði við Hásteinsveg 22, bjó þar 1927 til 1946, er hún flutti til Reykjavíkur.
Guðrún lést 1978.

I. Maður Guðrúnar, (15. júní 1906), var Geir Ísleifsson bóndi, f. 26. apríl 1882, d. 20. maí 1923. Foreldrar hans voru Ísleifur Magnússon bóndi á Kanastöðum, f. þar 8. janúar 1833, d. 22. nóvember 1895, og kona hans Sigríður Árnadóttir húsfreyja, f. 4. ágúst 1839 í Langholti í Flóa, d. 4. júlí 1920.
Börn þeirra:
1. Tómas Geirsson, f. 7. júlí 1907, d. 29. október 1907.
2. Sigríður Geirsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1907, d. 29. nóvember 1985. Maður hennar var Sigurður Ásgeir Gunnarsson kaupmaður.
3. Guðrún Geirsdóttir húsfreyja, f. 18. desember 1908, d. 15. september 1988. Maður hennar Gunnlaugur Loftsson kaupmaður.
4. Tómas Geisson kaupmaður, f. 20. júní 1912, d. 24. febrúar 1991. Kona hans Dagný Ingimundardóttir húsfreyja, kaupmaður.
5. Marta Þórunn Geirsdóttir gjaldkeri, f. 11. mars 1914, d. 27. ágúst 1989, ógift.
6. Geir Ísleifur Geirsson rafvirki, f. 20. maí 1922, d. 9. apríl 1999. Kona hans Bryndís Jónsdóttir deildarstjóri.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.