Guðrún Magnúsdóttir (ljósmóðir)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðrún Magnúsdóttir“
Guðrún Magnúsdóttir fæddist 10. júlí 1851 að Dalseli í V-Eyjafjallahreppi og lézt í Eyjum 15. júní 1936.
Ætt og uppruni
Foreldrar Guðrúnar voru Magnús bóndi í Dalseli, f. 29. marz 1801, d. 21. nóvember 1869, Þórodds bónda í Dalseli, f. 1761 í Dalseli, Gissurarsonar og konu Þórodds, Guðrúnar húsfreyju, f. 1768 í Nesi í Selvogi, Sigurðardóttur. Móðir Guðrúnar Magnúsdóttur og kona Magnúsar var Guðríður húsfreyja, f. 2. maí 1812, d. 25. júlí 1884, Ólafs bónda og klukkara í Múlakoti í Fljótshlíð, f. 1776 í Deild í Teigssókn í Fljótshlíð, Árnasonar og konu Ólafs, Þórunnar húsfreyju Þorsteinsdóttur, f. 1790 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal.
Lífsferill
Guðrún lauk ljósmæðranámi í Reykjavík 7. júní 1878.
Hún var ljósmóðir í Vestur-Eyjafjallaumdæmi 10. júní 1878-30. maí 1897.
Hún flutti til Eyja 1900 og aðstoðaði skipaða ljósmóður þar til ársins 1924. Einnig stundaði hún tóvinnu, einkum prjónaskap. Hún eignaðist hlut í Fagradal, er bygging hans var hafin 1905 og bjó þar síðan.
Er hún bjó u. Eyjafjöllum kynntist hún mormónatrú eins og Eiríkur frá Brúnum Ólafsson túlkaði hana. Stóð hún mitt í þeirri orrahríð, sem varð þar við kirkju, er aðsúgur var gerður að Eiríki og varð hún honum til bjargar frá meiðslum. Var í minnum haft, hvernig söfnuðurinn lét undan síga við orð hennar. (Þessi atburður er túlkaður í Paradísarheimt Halldórs Kiljans Laxness).
Guðrún var stofnfélagi Betelsafnaðar Hvítasunnumanna í Eyjum í júlí 1926 og var mjög virk í safnaðarstarfi.
Maki I (12. júní 1873): Þórður bóndi í Syðri-Rotum í Landeyjum, síðar í Hamragörðum u. Eyjafjöllum, f. 1. júní 1846, d. 15. apríl 1887, Jónsson bónda á Borgareyrum og Ólafar Þórðardóttur.
Börn þeirra Þórðar voru:
- Guðríður heimiliskennari í Eyjafjallahreppi, síðar í Eyjum, f. 31. ágúst 1873, d. 8. september 1921.
- Magnús, f. 20. september 1874, kvæntur í Eyjum, skildi og fór til Vesturheims. Hann kvæntist þar Vigdísi Jónsdóttur frá Ásgarði.
- Ísleifur, f. 29. okt. 1876, d. 3. sept. 1895.
- Karólína, f. 9. október 1881, d. 15. júlí 1886.
Maki II (4. október 1890): Markús bóndi að Hamragörðum og Lágafelli, f. 25. júlí 1860 í Stóru-Hildisey, d. 31. október 1898, Þórðarson bónda í Stóru-Hildisey, f. um 1812, Guðnasonar og konu Þórðar, Margrétar Jónsdóttur húsfreyju, f. um 1820.
Börn þeirra Markúsar voru:
- Markús, f. 25. janúar 1891, d. 9. apríl 1893.
- Þórunn, f. 23. september 1892, d. 1. júní 1921, gift Jóni Gíslasyni útgerðarmanni og verkstjóra, síðar á Ármótum í Eyjum, („Jóni á Ármóti“). Þau voru foreldrar Markúsar og Þórarins.
- Karólína Margrét, f. 24. október 1894, d. 11. nóvember 1894.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
- Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Manntöl.
- Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja. Reykjavík: Ísfoldarprentsmiðja H.F., 1946. I. Bls 150.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson: Guðrún Magnúsdóttir ljósmóðir 1851-1936. Blik, 1972, bls 155-171.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.