Guðrún Kristjánsdóttir (Ártúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir frá Ártúni, húsfreyja í Reykjavík fæddist 11. maí 1943 í Ártúni.
Foreldrar hennar voru Kristján Guðmundsson verkamaður, bóndi, f. 2. desember 1911 í Reykjavík, d. 16. apríl 1979, og síðari kona hans Fjóla Gísladóttir frá Saurum í Vindhælishreppi, A-Hún., húsfreyja, f. 5. júlí 1918, d. 5. nóvember 1991 á Skagaströnd.

Barn Kristjáns og fyrri konu hans Guðnýjar Ingibjargar Einarsdóttur:
1. Guðmundur Einar Kristjánsson verkamaður, síðast í Reykjavík, f. 14. september 1937 á Reyni, d. 2. maí 1977, ókvæntur og barnlaus.
Börn Kristjáns og síðari konu hans Fjólu Gísladóttur:
2. Guðný Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 18. janúar 1941 í Ártúni, Vesturvegi 20.
3. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 11. maí 1943 í Ártúni.
4. Sigurbjörg Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 18. apríl 1945 á Harrastöðum. Maður hennar er Magnús Jónasson.
5. Jóna Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1948 í Háagerði. I. Fyrri maður hennar var Magnús Ólafur Hjaltason. II. Maður hennar er Ólafur Hjaltason.
6. Gísli Snævar Kristjánsson húsasmiður á Sauðárkróki, f. 7. nóvember 1949 í Háagerði. Kona hans er Svanhildur Dagbjört Einarsdóttir.
7. Anna Margrét Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 16. júní 1952 í Háagerði. I. Fyrri maður hennar var Jóhannes Pálsson. II. Síðari maður hennar er Kristmundur Hrafn Ingibjörnsson.

Guðrún var með foreldrum sínum í Ártúni og fluttist með þeim til Skagastrandar 1943.
Hún giftist Trausta. Þau eignuðust fimm börn og skildu.
Guðrún býr í Reykjavík.

I. Maður Jóhönnu Guðrúnar var Trausti Tómasson, f. 31. maí 1939 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Sóldís Björk Traustadóttir, f. 24. júní 1965 í Reykjavík.
2. Hannes Þór Traustason, f. 27. apríl 1967 í Reykjavík, d. 17. desember 2000.
3. Ríkharður Traustason, f. 31. mars 1968 í Reykjavík.
4. Fjóla Kristín Traustadóttir, f. 15. september 1979 í Reykjavík.
5. Trausti Traustason, f. 10. nóvember 1981 í Reykjavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.