Guðrún Helgadóttir (Steinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Guðrún Helgadóttir verkakona frá Steinum fæddist 27. júní 1894 í London og lést 17. maí 1983.
Foreldrar hennar voru Helgi Jónsson trésmiður og útgerðarmaður í Steinum f. 1. júní 1858, d. 5. nóvember 1932, og kona hans Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1867, d. 26. febrúar 1924.

Börn Þórunnar og Helga í Steinum voru:
1. Þorsteinn Helgason, f. 9. apríl 1891, d. 3. janúar 1918.
2. Jónína Guðrún Helgadóttir ráðskona í Steinum 1930, f. 27. júní 1894, d. 17. maí 1983. Barnsfaðir hennar var Eyjólfur Bjarni Ottesen verslunarmaður í Dalbæ, f. 22. október 1891, d. 17. febrúar 1957.
3. Guðmundur Helgason útgerðarmaður, síðar veggfóðrari, f. 3. febrúar 1898, d. 13. maí 1983. Kona hans, skildu, var Ingveldur Þórarinsdóttir.
4. Una Magnúsína Helgadóttir húsfreyja í Miðgarði, f. 17. júní 1901, d. 28. ágúst 1990. Maður hennar var Ólafur Ísleifsson skipstjóri, f. 25. mars 1904, d. 17. september 1972.
5. Jónína Sigrún Helgadóttir húsfreyja, f. 19. mars 1908, d. 17. apríl 1980. Maður hennar var Ingólfur Guðmundsson matreiðslumaður, f. 12. febrúar 1910, d. 10. október 1987.

Guðrún var með foreldrum sínum í Steinum í æsku. Hún eignaðist Unni Guðlaugu með Eyjólfi Ottesen 1913, var vinnukona hjá foreldrum sínum með Unni Guðlaugu með sér 1920. Móðir hennar dó 1924 og hún var með ekklinum föður sínum í Steinum 1924 og ráðskona hans 1930. Faðir hennar lést 1937.
Guðrún var hjá Unni Guðlaugu dóttur sinni og fjölskyldu hennar í Steinum 1940, saumakona þar 1945, verkakona þar 1949. Þar var hún enn við Gos 1973. Hún lést 1983, jarðsett í Eyjum.

Barnsfaðir hennar var Eyjólfur Bjarni Ottesen verslunarmaður í Dalbæ, f. 22. október 1891, d. 17. febrúar 1957.
Barn þeirra
1. Unnur Guðlaug Eyjólfsdóttir húsfreyja í Steinum, f. 4. janúar 1913, d. 10. maí 2002. Maður hennar var Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri frá Viðey, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.