Guðríður Einarsdóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Einarsdóttir húsfreyja fæddist 1778 á Búastöðum og lést 5. ágúst 1846 í Gerði.
Guðríður bjó í Dölum 1801, en var komin að Ólafshúsum 1804 og að Vesturhúsum 1813 og var þar enn 1816.
Hún ól 5 börn, en missti 3 þeirra í frumbernsku.
Sigurður maður hennar lést 1820.
Hún var tómthúsekkja í Gomorra 1828 með Jósef hjá sér og fátæklingur í Þorlaugargerði 1835, ekkja og fátæklingur á Miðhúsum 1840 og ekkja og fátæklingur á Kirkjubæ 1845.
Guðríður lést 1846, þá niðursetningur í Gerði.

Maður Guðríðar, (19. október 1797), var Sigurður Árnason bóndi, f. 1774, d. 10. febrúar 1820.
Börn þeirra hér voru:
1. Sigurður Sigurðsson, f. 27. febrúar 1804 í Ólafshúsum, d. 7. mars 1804 úr ginklofa.
2. Sigurður Sigurðsson vinnumaður, f. 23. janúar 1809, líklega sá, sem dó 19. mars 1845.
3. Ragnhildur Sigurðardóttir, f. 3. apríl 1813, var ekki hjá þeim 1816. Hún mun hafa dáið ung. Skýrslur vantar að mestum hluta 1813-1816.
4. Jósef Sigurðsson vinnumaður, f. 22. september 1818, d. 25. desember 1847.
5. Sigurður Sigurðsson, f. 29. maí 1820, d. 5. júní 1820 úr „Barnaveiki“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.