Guðmundur Helgi Guðjónsson
Guðmundur Helgi Guðjónsson bifvélavirkjameistari frá Dölum fæddist 5. marz 1947 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson búfræðingur, bóndi í Dölum, f. 13. desember 1913, d. 30 mars 2001, og kona hans Helga Þuríður Árnadóttir frá Burstafelli, húsfreyja, f. 15 maí 1918, d. 8. desember 2008.
Börn Helgu og Guðjóns:
1. Árnný Sigurbjörg Guðjónsdóttir, f. 19. september 1940.
2. Oddfríður Jóna Guðjónsdóttir, f. 22. maí 1942
3. Emil Þór Guðjónsson, f. 15. febrúar 1944.
4. Guðmundur Helgi Guðjónsson, f. 5. mars 1947.
5. Ásbjörn Guðjónsson, f. 28. janúar 1949.
6. Elín Ebba Guðjónsdóttir, f. 20. október 1952.
7. Lárus Jóhann Guðjónsson, f. 6. febrúar 1959.
Maki (10. des. 1966): Inga Dóra Þorsteinsdóttir, f. 1946.
Börn:
1. Ingigerður sjúkraþjálfari, f. 1966
2. Guðný Helga löggiltur endurskoðandi, f. 1968, d. 2020
3. Kristín Hrönn kennari, f. 12. febr. 1976 í Rvk.
Guðmundur Helgi lauk sveinsprófi hjá Hreggviði Jónssyni í Eyjum 1966, en meistararéttindi hlaut hann 1969. Hann rak bílaverkstæðið Bílaver í Eyjum frá 1968 til goss. Hann var verkstæðisformaður hjá Véladeild S.Í.S 1973-1982, þjónustustjóri þar 1982-1992. Hann vann hjá Bifreiðaskoðun Íslands (síðar Frumherja) 1992-2000, tjónafulltrúi var hann hjá Tjónamati og skoðun (F.Í.B), síðan hjá Íslandstryggingu í Reykjavík frá 2004.
Heimildir
- Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
- Pers.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.