Grétar Þór Bergsson
Grétar Þór Bergsson vélvirkjameistari, sölumaður, knattspyrnuþjálfari fæddist 30. janúar 1960.
Foreldrar hans Bergur Heiðmar Vilhjálmsson frá Heiði á Langanesi, múrari, f. 12. júní 1933, d. 12. maí 2017, og kona hans Kristbjörg Guðrún Kristjánsdóttir frá Kirkjubóli, húsfreyja, verslunarmaður, talsímakona, f. 31. október 1931, d. 15. mars 2018.
Börn Kristbjargar og Bergs:
1. Grétar Þór Bergsson vélvirkjameistari, sölumaður, knattspyrnuþjálfari, f. 30. janúar 1960, ókvæntur.
2. Þórir Bergsson viðskiptafræðikennari, íþróttakennari í Kópavogi, f. 6. desember 1963, ókvæntur.
3. Kristín Bergsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 6. september 1970. Sambúðarmaður Einar Baldvin Pálsson.
Grétar Þór er ókvæntur og barnlaus. Hann býr í Kópavogi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Grétar Þór.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.