Gerður Guðmundsdóttir (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gerður Guðmundsdóttir.

Gerður Guðmundsdóttir frá Hellissandi, M.A. í hagnýtum málvísindum, kennari fæddist þar 9. mars 1948.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Ármann Böðvarsson kaupmaður, sveitarstjóri á Selfossi, ættaður frá Reyðarvatni á Rangárvöllum, f. 1. janúar 1916, d. 1. janúar 1978, og Magnea Hólmfríður Sörensdóttir, ættuð af Snæfellsnesi, f. 7. janúar 1921, d. 7. júlí 1995. Fósturfaðir Gerðar var Einar Snæbjörnsson frá Hellissandi, sjómaður á Seltjarnarnesi, f. 20. nóvember 1921, d. 10. mars 1998.

Gerður lauk kennaraprófi 1970 og stúdentsprófi 1971, tók BA-próf í ensku í Háskóla Íslands 1977, var við nám í University of Reading í Englandi 1977-1978 og varð MA- í hagnýtum málvísindum.
Gerður var kennari í Barnaskóla Akureyrar 1971-1972, í Barnaskólanum í Eyjum 1972-1973, Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1978-1979, í Framhaldsskólanum í Eyjum 1979-1982, í Menntaskólanum í Hamrahlíð frá 1982-2018.
Þau Helgi giftu sig 1975, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu að Áshamri 75 meðan þau bjuggu í Eyjum.

I. Maður Gerðar, (26. september 1975), er Helgi Bernódusson cand. mag., kennari, skrifstofustjóri Alþingis, f. 6. ágúst 1949.
Börn þeirra:
1. Árni Helgason lögmaður í Reykjavík, f. 25. júlí 1981. Kona hans Sigríður Guðmundsdóttir, f. 16. janúar 1981.
2. Kristinn Helgason námsmaður, f. 27. júní 1988.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Helgi.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.