Freyr Friðriksson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Freyr Friðriksson, framkvæmdastjóri fæddist 19. júní 1976.
Foreldrar hans Friðrik Ingi Óskarsson, frá Hvassafelli, forstjóri, endurskoðandi, f. 16. febrúar 1948, d. 21. mars 2024, og kona hans Auður Dóra Haraldsdóttir, húsfreyja, bankaritari, f. 26. júní 1949 í Rvk.

Börn Auðar Dóru og Friðriks:
1. Örlygur Gunnar Friðriksson rafvirkjameistari, bjó í Bretlandi f. 3. júlí 1967, d. 17. apríl 2022. Kona hans Tracey M. Friðriksson.
2. Óskar Sveinn Friðriksson sjávarútvegsfræðingur, framkvæmdastjóri, f. 22. maí 1969. Kona hans Sigrún Jóna Grettisdóttir.
3. Freyr Friðriksson tæknifræðingur, f. 19. júní 1976. Kona hans Elfa Hrönn Valdimarsdóttir.

Þau Elfa Hrönn giftu sig 2004, eignuðust fjögur börn. Þau búa á Hvolsvelli.

I. Kona Freys, (19. júní 2004) er Elfa Hrönn Valdimarsdóttir, húsfreyja, f. 12. apríl 1978 í Rvk. Foreldrar hennar Valdimar Ritchie Samúelsson, flugvirki, f. 30. apríl 1942, d. 21. júlí 2021, og kona hans Guðrún Björnsdóttir, húsfreyja, f. 12. september 1946.
Börn þeirra:
1. Valdimar Freyr Freysson, f. 16. október 2003.
2. Tjörvi Freyr Freysson, f. 22. mars 2005, d. 21. ágúst 2007.
3. Teitur Freyr Freysson, f. 14. apríl 2008.
4. Darri Freyr Freysson, f. 12. október 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.