Elísabet Sigurðardóttir (Nýjabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Steinvör Elísabet Sigurðardóttir.

Steinvör Elísabet Sigurðardóttir frá Nýjabæ, húsfreyja fæddist þar 3. júlí 1924 og lést 25. febrúar 2013. Foreldrar hennar voru Sigurður Þorsteinsson formaður í Nýjabæ, f. í Ísafjarðarkaupstað 2. febrúar 1888, d. 23. október 1970, og kona hans Jóhanna Jónasdóttir húsfreyja í Nýjabæ, f. 29. október 1898, d. 23. mars 1955.

Börn Jóhönnu og Sigurðar:
1. Steinvör Elísabet, f. 3. júlí 1924, d. 25. febrúar 2013.
2. Kristín Jónasína, f. 2. september 1925, d. 6. maí 2013.
3. Marta Sigríður, f. 22. janúar 1927.
4. Helga Sigríður, f. 10. nóvember 1929.
5. Geirþrúður, f. 30. mars 1935.

Elísabet var með foreldrum sínum.
Hún vann ýmis störf.
Elísabet eignaðist barn með Tómasi 1945.
Þau Sigurður Ármann giftu sig 1949, eignuðust eitt barn og Sigurður fóstraði Kjartan son hennar. Þau bjuggu í Sætúni við Bakkastíg 10 og við Helgafellsbraut 29, fluttu til Reykjavíkur við Gos 1973.
Sigurður lést 2005 og Elísabet 2013.

I. Barnsfaðir Elísabetar var Tómas Oddsson sjómaður, f. 22. desember 1925, d. 8. desember 2021.
Barn þeirra:
1. Kjartan Ólafs Tómasson, f. 28. júní 1945 í Nýjabæ. Fyrri kona hans Soffía Thorarensen. Síðari kona hans Freyja Helgadóttir.

II. Maður Elísabetar, (11. júní 1949), var Sigurður Ármann Höskuldsson frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, sjómaður. múrarameistari, f. 19. júní 1923, d. 8. september 2005.
Barn þeirra:
2. Málmfríður Sigurðardóttir húsfreyja í Eyjum, f. 8. desember 1948 í Sætúni. Maður hennar Þorkell Árnason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.