Elísabet Sigríður Jónsdóttir
Elísabet Sigríður Jónsdóttir, verkakona í Danmörku, fæddist 25. desember 1957.
Foreldrar hennar Jón Sigurðsson Þórðarson, skipasmiður, húsasmiður, f. 17. júní 1921, d. 7. maí 2017, og kona hans Stefanía Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 20. nóvember 1920, d. 22. maí 1991.
Börn Stefaníu og Jóns:
1. Stefán Hermann Jónsson vélstjóri, Hrísmóum 4, Garðabæ, f. 19. ágús 1947. Ókv.
2. Sverrir Þór Jónsson bifvélavirki, f. 5. júlí 1948 á Hásteinsvegi 7, síðast á Selfossi, d. 11. maí 1969 í bifhjólaslysi.
3. Birgir Jónsson vélvirki, Skólavegi 31, f. 9. nóvember 1952. Sambýliskona var Mardís Malla Andersen og síðar Ólína Bragadóttir.
4. Elísabet Sigríður Jónsdóttir verkakona, býr í Danmörku, f. 25. desember 1957.
5. Guðrún Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, garðyrkjufræðingur, Brekkuási 9 í Hafnarfirði, f. 23. september 1960. Maður hennar er Hjalti Steinþórsson.
6. Bjartmar Jónsson sjúkraliði í Noregi, f. 4. júlí 1963. Kona hans er Liv Reidun Hegglan.
Þau Hólmgeir giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Hún eignaðist barn með Jensen.
Þau Sven Morte Krag giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa í Danmörku.
I. Fyrrum maður Elísabetar Sigríðar er Hólmgeir Þór Jóhannsson, sjómaður, f. 30. maí 1957. Foreldrar hans Jóhann Pétur Guðmundsson, f. 11. nóvember 1918, d. 19. mars 1989, og María Ingiríður Jóhannsdóttir, f. 11. september 1923, d. 28. janúar 2017.
Barn þeirra:
1. Birgitta St. Hólmgeirsdóttir, f. 25. apríl 1985.
II. Barnsfaðir Elísabetar Sigríðar er Jensen.
Barn þeirra:
2. Stefán Thor Jensen, f. 26. desember 1994.
III. Maður Elísabetar Sigríðar er Sven Morten Krag.
Barn þeirra:
3. Kasper Krag.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðrún Sigríður.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.