Birgir Jónsson (vélvirki)
Birgir Jónsson vélvirki fæddist 9. nóvember 1952.
Foreldrar hans Jón Sigurðsson Þórðarson, skipasmiður, húsasmiður, f. 17. júní 1921, d. 7. maí 2017, og kona hans Stefanía Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 20. nóvember 1920, d. 22. maí 1991.
Börn Stefaníu og Jóns:
1. Stefán Hermann Jónsson vélstjóri, Hrísmóum 4, Garðabæ, f. 19. ágús 1947. Ókv.
2. Sverrir Þór Jónsson bifvélavirki, f. 5. júlí 1948 á Hásteinsvegi 7, síðast á Selfossi, d. 11. maí 1969 í bifhjólaslysi.
3. Birgir Jónsson vélvirki, Skólavegi 31, f. 9. nóvember 1952. Sambýliskona var Mardís Malla Andersen og síðar Ólína Bragadóttir.
4. Elísabet Sigríður Jónsdóttir verkakona, býr í Danmörku, f. 25. desember 1957.
5. Guðrún Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, garðyrkjufræðingur, Brekkuási 9 í Hafnarfirði, f. 23. september 1960. Maður hennar er Hjalti Steinþórsson.
6. Bjartmar Jónsson sjúkraliði í Noregi, f. 4. júlí 1963. Kona hans er Liv Reidun Hegglan.
Þau Mardís hófu sambúð, eignuðust ekki börn. Þau bjuggu á Kirkjubæjarbraut 10. Þau skildu.
Þau Ólína hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Sléttabóli við Skólaveg 31. Þau skildu.
I. Fyrrum sambúðarkona Birgis er Mardís Malla Andersen, byggingafræðingur, f. 2. apríl 1959.
II. Fyrrum sambúðarkona Birgis er Ólína Bragadóttir frá Ísafirði, f. 27. febrúar 1960. Foreldrar hennar Bragi Einarsson, f. 26. maí 1932, d. 25. september 2011, og Gróa Aradóttir, f. 9. janúar 1935, d. 14. mars 2019.
Barn þeirra:
1. Einar Þór Birgisson, f. 28. febrúar 1990.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Birgir.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.