Elínborg Pétursdóttir (Heiðarbrún)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Elínborg Pétursdóttir.

Elínborg Pétursdóttir frá Eyrarbakka, húsfreyja á Heiðarbrún við Vestmannabraut 59 fæddist 30. september 1903 og lést 26. janúar 1993.
Faðir hennar var Jóhann Pétur sjómaður á Blómsturvöllum á Eyrarbakka 1910, f. 7. maí 1872, d. 6. apríl 1920, Hannesson ókvænts bónda á Efra-Hvoli 1870, f. 2. janúar 1832, Jónssonar bónda þá í Álftagróf í Mýrdal, f. 2. nóvember 1787 á Klömbru u. Eyjafjöllum, d. 30. júlí 1860 á Brekkum í Mýrdal, Árnasonar, og konu Jóns Árnasonar, Ragnhildar húsfreyju, f. 27. nóvember 1793, d. 3. júní 1859, Jónsdóttur.
Móðir Jóhanns Péturs og bústýra, síðar húsfreyja á Efra-Hvoli, var Jóhanna, f. 1832, Ormsdóttir bónda í Hamarshjáleigu í Gaulverjabæjarsókn 1845, f. 1792, Magnússonar, og konu Orms, Ingibjargar húsfreyju frá Vestri-Loftsstöðum í Gaulv., f. 1792, Pétursdóttur.
Kona Jóhanns Péturs og móðir Elínborgar var Elín, f. 16. júlí 1866, d. 3. ágúst 1960, jarðs. í Eyjum, Vigfúsdóttir bónda í Jaðarkoti í Villingaholtssókn 1870, f. 9. febrúar 1829, d. 11. janúar 1891, Þorvarðarsonar bónda í Jaðarkoti 1835, f. 21. september 1795, d. 18. september 1844, Oddssonar, og konu Þorvarðar, Margrétar húsfreyju, f. 1795, d. 18. janúar 1838, Vigfúsdóttur.
Móðir Elínar Vigfúsdóttur og kona Vigfúsar var Vilborg húsfreyju, f. 16. september 1827, d. 12. mars 1897, Jónsdóttir bónda í Súluholtshjáleigu, f. 1801, d. 24. febrúar 1887, Jónssonar, og konu Jóns í Súluholtshjáleigu, Kristínar húsfreyju, f. 1787, d. 11. mars 1868, Jónsdóttur.

Börn Elínar og Jóhanns Péturs, - í Eyjum:
1. Elínborg Pétursdóttir húsfreyja á Heiðarbrún við Vestmannabraut 59, f. 30. september 1903, d. 26. janúar 1993.
2. Jónína Pétursdóttir húsfreyja í Vesturholtum við Brekastíg 12, húsfreyja, f. 31. ágúst 1906, d. 20. mars 1994.
3. Sigríður Guðmunda Pétursdóttir húsfreyja á Ásavegi 7, f. 22. nóvember 1907, d. 10. maí 2000.

Elínborg var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hennar drukknaði, er hún var á 17. árinu. Hún var með móður sinni og fluttist með henni og systrum sínum til Eyja 1926.
Hún vann við fiskiðnað.
Þau Ísleikur giftu sig, eignuðust ekki börn. Þau bjuggu á Heiðarbrún við Vestmannabraut 59.
Ísleikur lést 1987 og Elínborg 1993.

I. Maður Elínborgar var Ísleikur Jónsson frá Úthlíð við Vestmannabraut 58a, bifreiðastjóri, f. 6. júní 1901, d. 12. júlí 1987.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.