Elín Hauksdóttir
Elín Hauksdóttir, húsfreyja, verslunarmaður fæddist 2. júní 1958.
Foreldrar hennar Haukur Þór Guðmundsson, frá Ísafirði, sjómaður, verkamaður, f. 5. júní 1926, d. 25. ágúst 1988, og kona hans Halldóra Ármannsdóttir, frá Laufholti, húsfreyja, saumakona, gangavörður, starfsmaður við sundlaug, f. 8. desember 1935, d. 25. janúar 2017.
Börn Halldóru og Hauks Þórs:
1. Guðmar Þór Hauksson sagnfræðingur, f. 22. júní 1955.
2. Ármann Hauksson sálfræðingur, f. 3. september 1956, d. 1. júní 2019.
3. Elín Hauksdóttir, verslunarmaður, f. 2. júní 1958. Maður hennar Guðlaugur Aðalsteinn Stefánsson.
4. Draupnir Hauksson sjómaður, verkamaður, f. 4. september 1963, d. 23. október 2010. Fyrrum kona hans Fanney Friðriksdóttir frá Sandgerði.
5. Magni Freyr Hauksson, f. 12. ágúst 1964. Barnsmóðir hans Jósebína Ósk Fannarsdóttir.
Þau Guðlaugur Aðalsteinn giftu sig 1998, eignuðust eitt barn. Þau búa í Kópavogi.
I. Maður Elínar, (2. júní 1998), er Guðaugur Aðalsteinn Stefánsson, bifreiðastjóri, f. 9. júlí 1951. Foreldrar hans Stefán Magnússon, f. 23. september 1917, d. 7. júní 2003, og Svava Einarsdóttir, f. 13. ágúst 1922, d. 1. febrúar 2000.
Barn þeirra:
1. Eydís Eva Guðlaugsdóttir, f. 29. ágúst 1995.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.