Eiríkur Jónsson (viðskiptafræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eiríkur Jónsson viðskiptafræðingur, fjármálastjóri fæddist 27. maí 1959.
Foreldrar hans voru Jón Eiríksson frá Hesti í Borgarfirði, lögfræðingur, skattstjóri, f. 14. mars 1916, d. 21. október 1997, og síðari kona hans Bergþóra Guðjónsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, f. 21. apríl 1919, d. 30. júní 2004.

Barn Jóns og Önnu:
1. Þorbjörg Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, kennari, f. 22. júní 1942. Fyrrum maður hennar Edvard S. Ragnarsson. Maður hennar Símon Ólason.
Barn Önnu Guðrúnar frá fyrra hjónabandi sínu og fósturbarn Jóns:
2. Halldór Gunnlaugsson, f. 27. desember 1930, d. 16. nóvember 1977.
Börn Jóns og Bergþóru
1. Sigríður Jónsdóttir viðskiptafræðingur, f. 5. febrúar 1954. Maður hennar Björn Lárusson.
2. Halldóra Jónsdóttir bókasafnsfræðingur, f. 27. október 1955. Maður hennar Valentínus Ólason.
3. Guðjón Jónsson verkfræðingur, f. 7. september 1957. Kona hans Sigurlaug Vilhelmsdóttir.
4. Eiríkur Jónsson viðskiptafræðingur, f. 27. maí 1959. Kona hans Sigrún Ragna Ólafsdóttir.

Þau Sigrún Ragna giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Eiríks er Sigrún Ragna Ólafsdóttir frá Stykkishólmi, viðskiptafræðingur, endurskoðandi, stjórnarmaður, f. 18. ágúst 1963. Foreldrar hennar Ólafur Kristjánsson, f. 11. september 1940, og Ástrós Þorsteinsdóttir, f. 15. febrúar 1941.
Börn þeirra:
1. Kristján Óli Eiríksson, f. 28. maí 1997.
2. Árni Birgir Eiríksson, f. 28. maí 1997.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.