Daði Pálsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Daði Pálsson, framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Laxeyjar, fæddist 3. apríl 1975.
Foreldrar hans Herdís Kristmannsdóttir húsfreyja, verkstjóri, f. 29. nóvember 1953, og maður hennar Páll Sigurgeir Grétarsson sjómaður, matsveinn, f. 1. mars 1951.

Börn Herdísar og Páls:
1. Arnheiður Pálsdóttir húsfreyja, kennari, f. 4. september 1971. Maður hennar Eiríkur Arnórsson.
2. Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Laxeyjar, f. 3. apríl 1975. Kona hans Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir.
3. Þórunn Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir í Kópavogi, f. 6. maí 1979. Maður hennar Stefán Jónsson.

Þau Þóra Hrönn giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Austurveg 1b.

I. Kona Daða er Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir húsfreyja, rekur góðgerðarverslun, f. 19. febrúar 1973.
Börn þeirra:
1. Óliver Daðason, f. 9. september 2001.
2. Sunna Daðadóttir, f. 31. maí 2005.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.