Blik 1978/Sjúkrahús Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1978



Sjúkrahús Vestmannaeyja


Nýja sjúkrahúsið í Vestmannaeyjakaupstað var tekið að fullu í notkun fyrir 4 árum.
Voru þá um það bil 12 ár liðin frá því að byggingarframkvæmdir hófust við það. — Fyrsta rekustungan var tekin 27. okt. 1962. Það gerði frú Sigríður Magnúsdóttir húsfrú í Höfn við Bakkastíg, kona Tómasar M. Guðjónssonar, kaupmanns, konsúls og útgerðarmanns. Frúin var þá formaður Slysavarnadeildarinnar Eykyndils í Vestmannaeyjum. Sá félagsskapur hafði þá unnið ósleitilega að slysamálum Eyjabúa á undanförnum árum undir stjórn áhugasamra og fórnfúsra kvenna í kaupstaðnum.
Meistarar við byggingarframkvæmdirnar voru þessir:
Múrarameistarar: Hjörleifur Guðnason og Sigurður Sveinbjörnsson, kunnir múrarameistarar í bænum.
Hlutafélagið Smiður við Strandveg hafði á hendi alla trésmíði í Sjúkrahúsinu.
Pípulagningameistari var Sigursteinn Marinósson, Faxastíg.
Haraldur Eiríksson h/f annaðist allar raflagnir í byggingunni.
Og síðustu hönd á plóginn lögðu síðan bræðurnir Gísli og Ragnar Engilbertssynir Engilbertssynir, sem önnuðust allar málningarframkvæmdir við húsið yzt sem innst, utan dyra sem innan veggja.
Rétt er hér að geta þess, að eilítill hluti sjúkrahússins var tekinn í notkun í maímánaðarlokin 1971. Þá fór fram vígsla þess að nokkru leyti. Að sjálfsögðu heftu afleiðingar eldgossins á Heimaey þessar framkvæmdir Eyjafólks eins og aðrar svo að skipti misserum.

ctr


Þessi mynd var tekin af nokkrum forustumönnum Vestmannaeyjakaupstaðar, þegar fyrsta rekustungan var tekin að byggingu sjúkrahússins 27. okt. 1962. Tvær konur úr forustuliði kvennasamtakanna í Eyjum sjást einnig á myndinni.
Frá vinstri: Þorvaldur Jónsson bæjarverkfræðingur, Henrik Linnet læknir, Einar Guttormsson sjúkrahússlæknir, Kristinn Sigurðsson verkstjóri hjá Vestmannaeyjakaupstað, Jóna Vilhjálmsdóttir formaður Kvenfélagsins Líknar, Jóhann Friðfinnsson bæjarfulltrúi, Sigríður Magnúsdóttir formaður Slysavarnafélagsins Eykindils, Guðlaugur Gíslason bæjarstjóri, Sveinn Tómasson bæjarfulltrúi, Karl Guðjónsson bæjarfulltrúi.

Frú Sigríður Magnúsdóttir tók skóflustunguna.
(Skýring leiðrétt samkv. árg. 1980)


ctr


Sjúkrahús Vestmannaeyja.