Blik 1941, 2. tbl./Gjafir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1941


GJAFIR.


1. Frú Elín ÞorsteinsdóttirLöndum, hefir gefið skólanum þessar bækur:
VÖKU, sem þeir fræðimennirnir og prófessorarnir Ágúst H. Bjarnason, Árni Pálsson, Sigurður Nordal o.fl. gáfu út á árunum 1927—1929.
ÁRSRIT Hins íslenzka fræðafélags 1919.
ÓÐINN, nokkur hefti.
Áður hefir þessi sama kona gefið skólasjóðnum stórgjöf.

2. Helgi Benediktsson kaupmaður hefir gefið skólanum vangamynd af Hannesi sál. Jónssyni hafnsögumanni. Myndina hefir mótað í gips Bjarni Guðjónsson myndskeri. Hún er kjörgripur. Áður hefir Helgi gefið bókasafni skólans á annað hundrað bækur.

3. Matthías Ástþórsson nemandi skólans hefir gefið skólanum mörg nauðsynleg tilraunaglös.

Öllum þessum gefendum færi ég hér með alúðarþakkir fyrir hönd skólans. Hugulsemi og velvild þeirra í garð stofnunarinnar er öðrum til fyrirmyndar og hvatningar í þessum efnum.

Þ.Þ.V.