Bjarni Bjarnason (sjómaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bjarni Bjarnason sjómaður fæddist 20. nóvember 1946 og lést 19. ágúst 1966.
Foreldrar hans voru Bjarni Bjarnason rakarameistari, f. 12. maí 1916, d. 26. desember 1998, og kona hans Kristín Einarsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1914, d. 7. febrúar 1995.

Börn Kristínar og Bjarna:
1. Jónína öryrki, fædd 9. janúar 1942, d. 17. september 2023.
2. Anna Erna húsfreyja og starfsmaður Íslensk ameríska verslunarfélagsins, fædd 16. apríl 1943, dáin 3. febrúar 1996, gift Magnúsi Karlssyni vélvirkja og tollverði.
3. Bjarni sjómaður, fæddur 20. nóvember 1946, dáinn 19. ágúst 1966.
4. Guðbjörg Helga húsfreyja og hjúkrunarfræðingur, fædd 2. maí 1948, gift Hjalta Jóhannssyni tæknifræðingi í Hafnarfirði.
5. Einar Bjarnason frystihússeigandi í Eyjum, f. 8. ágúst 1956, kvæntur Ester Ólafsdóttur Runólfssonar.

Bjarni var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð sjómaður, reri síðast á Halkion. Bjarni lést 1966.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.