Bjarney Sif Ólafsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bjarney Sif Ólafsdóttir, listamaður, starfsmaður Rvkborgar, fæddist 4. júlí 1963.
Foreldrar hennar Ólafur Siggeir Óskarsson, bifvélavirki, f. 21. apríl 1934, d. 8. október 2021, og Sigrún Þorláksdóttir, frá Hvolsvelli, húsfreyja, matráðskona, forstöðumaður, f. 9. mars 1945.

Börn Sigrúnar og Ólafs:
1. Bjarney Sif Ólafsdóttir listamaður, starfsmaður Reykjavíkurborgar, f. 4. júlí 1963. Maður hennar Ólafur Björgvin Pétursson.
2. Óskar Örn Ólafsson skipstjóri, starfsmaður Vinnslustöðvarinnar, f. 20. júlí 1967. Fyrrum kona hans Erla Gísladóttir. Kona hans Kristbjörg Jónsdóttir.
Börn Sigrúnar og Benedikts Ragnarssonar:
3. Iða Brá Benediktsdóttir viðskiptafræðingur, aðstoðarbankastjóri, f. 10. nóvember 1976. Maður hennar Einar Þór Guðjónsson.
4. Ragnar Benediktsson vélfræðingur, viðskiptafræðingur, hefur MSc-próf í fjármálum frá Pekingháskóla. Hann var fjárfestingastjóri, nú sjóðsstjóri, f. 10. maí 1981, ókvæntur.

Þau Ólafur Björgvin giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Rvk.

I. Maður Bjarneyjar er Ólafur Björgvin Pétursson frá Egilsstöðum, sendibílstjóri, f. 26. desember 1958. Foreldrar hans Pétur Eysteinn Stefánson, f. 29. desember 1930, d. 26. mars 2010, og Þórhalla Björgvinsdóttir, f. 19. febrúar 1929.
Börn þeirra:
1. Karel Pétur Ólafsson, f. 21. nóvember 1986.
2. Kamilla Rún Ólafsdóttir, f. 18. mars 1991.
3. Stefán Víðir Ólafsson, f. 31. janúar 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.