Björn Einarsson (Sólheimum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Björn Kristinn Einarsson frá Skeiði í Svarfaðardal, sjómaður, vélstjóri, síðar verkstjóri fæddist 24. september 1894 og lést 30. október 1968.
Foreldrar hans voru Einar Jónsson bóndi og sjómaður á Skeiði, f. 17. nóvember 1872, d. 6. júní 1936.og kona hans Margrét Björnsdóttir húsfreyja, f. 26. október 1870 í Svarfaðardal, d. 24. ágúst 1939.

Björn var með foreldrum sínum, á Skeiði 1901, í Árgerði í Svarfaðardal 1910, á Lindargötu 3 á Siglufirði 1920.
Þau Sigurbjörg giftu sig, fluttu til Eyja á síðari hluta þriðja áratugarins og til Siglufjarðar 1928. Þau eignuðust tvö börn í Eyjum og tvö á Siglufirði.
Sigurbjörg lést 1934 og Björn 1968.

I. Barnsmóðir Björns var Guðrún Úlfarsdóttir verkakona, síðar vinnukona og ráðskona í Drangshlíð, f. 28. nóvember 1897 í Fljótsdal í Fljótshlíð, d. 28. apríl 1985.
Barn þeirra:
1. Ingólfur Björnsson bóndi í Drangshlíðardal, f. 30. nóvember 1925, d. 10. janúar 2022.

II. Kona Björns var Sigurbjörg Haraldsdóttir húsfreyja, f. 15. september 1897, d. 23. janúar 1934.
Börn þeirra:
2. Ásta Björnsdóttir, f. 12. júlí 1927, d. 13. desember 1956.
3. Einar Grétar Björnsson, f. 17. ágúst 1928, d. 10. febrúar 2011. Kona hans Angela Guðbjörg Guðjónsdóttir.
4. Rósa Dagmar Björnsdóttir, f. 2. desember 1929 á Siglufirði, d. 4. janúar 2023. Maður hennar Sigurður Ragnar Bjarnason.

III. Síðari kona Björns var Steinunn Björnína Friðriksdóttir, 17. júní 1907, d. 16. september 1976. Foreldrar hennar Friðrik Sigfússon bóndi í Pottagerði í Staðarhreppi, Skagaf., f. 24. nóvember 1878 á Brenniborg, d. 12. október 1959, og kona hans Guðný Jónasdóttir húsfreyja, f. 16. mars 1877 í Hróarsdal, d. 29. apríl 1949.
Börn þeirra:
5. Sveinn Viðar Björnsson, f. 3. nóvember 1935. Barnsmóðir hans Anna Egilsdóttir. Kona hans Guðný Guðmundsdóttir.
6. Hjalti Björnsson, f. 18. ágúst 1939, d. 25. apríl 2009. Kona hans Sigrún Jónsdóttir.
7. Friðrik Björnsson, f. 17. nóvember 1940, d. 20. júlí 1975. Kona hans Þorgerður Erla Jónsdóttir.
8. Anna Margrét Björnsdóttir, f. 28. nóvember 1941, d. 31. desember 2019.
9. Hafþór Björnsson (skráður Rósmundsson), f. 4. júní 1943. Fyrrum kona hans Jónína Brynja Gísladóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigurgeir Ingólfsson.
  • Skagfirskar æviskrár – Tímabilið 1890-1910. Margir höfundar. Ritstjóri: Eiríkur Kristinsson. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 1964-1972.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.