Alfons Halldór Sigurðsson
Alfons Halldór Sigurðsson sjómaður í Akurey fæddist 2. mars 1904 í Björgvin og lést 2. desember 1927.
Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson bóndi, sjómaður og smiður, síðar í Akurey, f. 25. janúar 1865, d. 8. desember 1914, og kona hans Hildur Eiríksdóttir húsfreyja, f. 8. janúar 1862, d. 8. mars 1923.
Börn Hildar og Sigurðar voru:
1. Sigríður Jónína Sigurðardóttir, f. 22. september 1890, nýfædd hjá þeim í Nýborg 1890, tveggja ára þar með þeim 1892, 5 ára með Hildi í Vanangri 1895, dó 15. febrúar 1898 í Stekkjarnesi í Norðfirði.
2. Jóhann Ólafur Sigurðsson, f. 11. janúar 1892. Hann var gefinn
til Færeyja 1899, 7 ára, fór frá Nesi í Norðfirði samtímis Stefáni Péturssyni.
3. Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 23, f. 22. febrúar 1895, d. 9. júní 1948.
4. Jónína Hólmfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 30, (Hofsstöðum), f. 29. júlí 1897 á Norðfirði, d. 25. nóvember 1978.
5. Sigríður Jónína Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 30, (Hofsstöðum), f. 23. september 1898 í Stekkjarnesi í Norðfirði, d. 30. desember 1977.
6. Guðrún Dagmar Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 10. apríl 1900, d. 16. ágúst 1993.
7. Engilbert Ottó Sigurðsson, f. 16. október 1901, d. 5. maí 1930.
8. Alfons Halldór Sigurðsson, f. 2. mars 1904, d. 2. desember 1927.
Alfons Halldór var með foreldrum sínum í Björgvin til ársins 1909,
er þau fluttust í Akurey, sem faðir hans hafði reist.
Eftir lát föður síns 1914 bjó hann þar ásamt móður sinni og systkinum. Hann var verkamaður í Akurey 1923.
Hildur móðir hans lést 1924 og í lok ársins var hann í Akurey ásamt fjölskyldu Þorbjargar systur sinnar, Engilberti Ottó og Dagmari systkinum sínum.
Þar bjó hann 1925 með Alfons, Dagmari og Carli Christian sjómanni unnusta hennar.
Alfons Halldór var sjómaður, er hann lést 1927.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.