Aðalheiður Bjarnadóttir (Kópavogi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Aðalheiður Bjarnadóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Aðalheiður Bjarnadóttir húsfreyja í Kópavogi fæddist 29. febrúar 1960 í Eyjum.
Foreldrar hennar Bjarni Ólafsson verkamaður, verkstjóri, slippstjóri, matsveinn, f. 18. október 1932, d. 23. febrúar 1991, og Erla Marinósdóttir Olsen húsfreyja, f. 11. janúar 1932, d. 23. apríl 2021.

Börn Erlu og Bjarna:
1. Fanney Bjarnadótir húsfreyja í Njarðvík, f. 24. maí 1953 á Landspítalanum. Maður hennar Gunnólfur Árnason.
2. Ólafur Birgir Bjarnason, f. 27. nóvember 1957 á Kirkjubæjarbraut 5.
3. Aðalheiður Bjarnadóttir húsfreyja í Kópavogi, 29. febrúar 1960 í Eyjum. Maður hennar Leifur Kristjánsson.
4. Olga Sædís Bjarnadóttir húsfreyja í Keflavík, f. 23. febrúar 1963 í Eyjum. Maður hennar Árni Heiðar Árnason.
Barn Erlu og Jóns Geirmundar Kristinssonar bifreiðastjóra frá Knarrartungu á Snæfellsnesi:
5. Laufey Dagmar Jónsdóttir, f. 6. september 1949, húsfreyja í Grindavík. Maður hennar Kristinn Arnberg Sigurðsson.

Þau Leifur giftu sig, eignuðust þrjú börn.

I. Maður Aðalheiðar er Leifur Kristjánsson úr Kópavogi, pípulagningamaður, f. 29. maí 1959. Foreldrar hans Margrét Sigurðardóttir, f. 31. desember 1923, d. 17. febrúar 2012, og Kristján Úlfarsson, f. 17. október 1921, d. 3. nóvember 1989.
Börn þeirra:
1. Bjarni Kristján Leifsson, f. 17. desember 1978.
2. Erla Margrét Leifsdóttir, f. 10. febrúar 1983.
3. Leifur Andri Leifsson, f. 11. október 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.