Þjóðhátíðarlag (1993)
Fara í flakk
Fara í leit
Þjóðhátíðarlag | ||
1992 | 1993 | 1994 |
- Er sumarið mig vængjum sínum vefur
- vaknar gömul þrá í brjósti mér.
- Eyjan mín sem allt mér gefið hefur
- óðara þá til þín strax ég fer.
- Ævintýrin engan taka enda
- alltaf þegar hittumst við á ný
- hér ævintýrum ljúft er í að lenda
- og liggja þínum mjúka faðmi í.
- Þegar logarnir dansandi lýsa upp tjöld
- hljóma lögin sem kunnum við flest.
- Þá í hjartanu veit ég að öld eftir öld
- verður alltaf á Heimaey best.
- Í dalnum sem var eitt sinn ofurseldur
- ösku, fyrir áratugum tveim
- logar bál og heitur ástareldur
- allra sem hér komnir eru heim.
- Njótum þess að sitja aftur saman
- sameinuð í okkar fagra dal.
- Nú skal verða glatt á hjalla og gaman
- því gleðin hér í dalnum ríkja skal.
- Lag: Gísli Helgason og Eyjólfur Kristjánsson
- Texti: Ingi Gunnar