Dagar og nætur
Fara í flakk
Fara í leit
Þjóðhátíðarlag | ||
1991 | 1992 | 1993 |
- Skipið mig ber yfir spegilslétt haf
- og stefnan er tekin til þín.
- Gleymt hef ég ólgu og óveðragný
- og nú kem ég heim á ný.
- Í fjörunni stóð ég og fylgdist með sæ
- en skipið þitt færðist ei nær.
- Nú sé ég betri og bjartari tíð
- er nálgast þjóðhátíð.
- Viðlag:
- Já daga og nætur í Dalnum ég dvel
- og hér vil ég vera með þér.
- Í kvöld logar bálköstur klettinum á,
- þá kviknar í hjartanu ástarþrá.
- Við svífum um götuna saman í kvöld
- og skuggarnir leika við tjöld.
- Leiftur á himni og ljósin svo skær
- nú laða mig nær og nær.
- Lag og texti: Geir Reynisson