Óli Þór Ástvaldsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Óli Þór Ástvaldsson á Þórustöðum í Eyjafirði, lærður bankamaður frá Noregi og Danmörku, bankaritari í Sparisjóðnum, framkvæmdastjóri Vélbátatrygginga Eyjafjarðar, fæddist 8. ágúst 1949 í Litla-Hvammi.
Foreldrar hans Ástvaldur Helgason forstöðumaður, bifreiðastjóri, sundlaugarvörður, f. 7. nóvember 1925, d. 20. apríl 1996, og kona hans Kristín Oktavía Ingimundardóttir húsfreyja, iðnverkakona, handavinnukennari, verslunarmaður, f. 8. október 1922, d. 23. júní 1997.

Börn Kristínar og Ástvaldar:
1. Óli Þór Ástvaldsson á Þórustöðum í Eyjafirði, bankaritari í Sparisjóðnum, lærður bankamaður frá Noregi og Danmörku, framkvæmdastjóri Vélbátatrygginga Eyjafjarðar, f. 8. ágúst 1949 í Litla-Hvammi. Kona hans er Guðfinna Nývarðsdóttir húsfreyja, heilsuverndarhjúkrunarfræðingur, deildarstjóri við heilsugæsluna á Akureyri.
2. Sigurbjörg Sóley Ástvaldsdóttir húsfreyja á Hvolsvelli, þroskaþjálfi, f. 23. janúar 1951 í Litla-Hvammi. Maður hennar er Ágúst Ingi Ólafsson sveitarstjóri í Hvolhreppi, fjármálastjóri.
3. Sigurður Rúnar Ástvaldsson nú í Reykjavík, tvíburi, f. 5. september 1956 í Sigtúni. Kona hans. (skildu), var Arna Guðlaug Albertsdóttir.
4. Finnbogi Arnar Ástvaldsson rafvirki á Hvolsvelli, tvíburi, f. 5. september 1956 í Sigtúni. Sambýliskona hans var Agnes Ólöf Thorarensen.
5. Ragnar Ástvaldsson bifreiðastjóri í Kópavogi, f. 20. apríl 1960 í Sigtúni. Kona hans er Guðrún Bergmann Magnúsdóttir.
6. Viðar Þór Ástvaldsson, verslunarstjóri á Selfossi, f. 20. desember 1965. Kona hans er Jóhanna Ósk Pálsdóttir.
Barn Kristínar Oktavíu fyrir hjónaband er
7. Inga Jóhanna Arnórsdóttir, f. 26. janúar 1943 í Reykjavík. Hún býr í Svíþjóð. Maður hennar, (skildu), var Árni Sveinbjörn Árnason.

Þau Guðfinna giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa á Þórustöðum í Eyjafirði.

I. Kona Óla Þórs er Guðfinna Nývarðsdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, heilsuverndarhjúkrunarfræðingur, deildarstjóri við Heilsugæsluna á Akureyri, f. 7. október 1950. Foreldrar hennar Nývarð Ólfjörð Jónsson, f. 3. september 1910, d. 8. október 1994, og Kristín Sigurjónsdóttir, f. 5. september 1906, d. 12. ágúst 1990.
Börn þeirra:
1. Kristín Rós Óladóttir, f. 26. apríl 1972.
2. Sólrún Óladóttir, f. 24. júlí 1975.
3. Hlynur Þór Ólason, f. 3. nóvember 1977.
4. Helga Sif Óladóttir, f. 20. mars 1991.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.