Ástvaldur Helgason (Sigtúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ástvaldur Helgason frá Sigtúni, forstöðumaður, bifreiðastjóri, sundlaugarvörður fæddist 7. nóvember 1925 á Hjalteyri og lést 20. apríl 1996 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Helgi Ágúst Helgason, þá verslunarmaður, síðar vélstjóri og fiskimatsmaður, f. 25. ágúst 1893, d. 26. mars 1968, og barnsmóðir hans, síðar húsfreyja, Þórfinna Finnsdóttir, f. 28. maí 1891, d. 15. nóvember 1976.

Börn Helga og Þórfinnu voru:
1. Jóhanna Kristín Helgadóttir húsfreyja á Þingeyri, f. 9. október 1915, d. 7. október 2000.
2. Guðrún Helga Helgadóttir húsfreyja, f. 14. apríl 1924 á Hjalteyri, d. 29. desember 1997.
3. Ástvaldur Helgason sundlaugarvörður, f. 7. nóvember 1925, d. 20. apríl 1996.
Barn Þorfinnu og fósturbarn Helga var
4. Ólafur Gränz húsgagnasmíðameistari, f. 4. mars 1912 í Dal, d. 14. ágúst 1960.

Ástvaldur var með foreldrum sínum í æsku, en þau skildu, og síðar var hann með móður sinni og Ólafi Guðmundssyni gúmílímara á Bakka á Flötum og var þar enn 1945.
Þau Kristín Oktavía giftu sig 1949 og bjuggu í Langa-Hvammi við fæðingu Óla Þórs 1949 og við fæðingu Sigurbjargar Sóleyjar 1951.
Þau bjuggu síðar lengst í Sigtúni, eignuðust sex börn.
Ástvaldur var sjómaður um skeið, bifreiðastjóri á vetrum, en forstöðumaður Sundlaugarinnar á sumrum.
Fjölskyldan fluttist á Hvolsvöll 1968 og þar var Ástvaldur vélavörður í frystihúsi Sláturfélags Suðurlands. Árið 1985 fluttu þau hjónin til Reykjavíkur þar sem Ástvaldur var sundlaugarvörður við sundlaug Seltjarnarness í sex ár.

I. Kona Ástvaldar, (8. október 1949), var Kristín Oktavía Ingimundardóttir húsfreyja, handavinnukennari, f. 8. október 1922, d. 23. júní 1997.
Börn þeirra:
1. Óli Þór Ástvaldsson á Þórustöðum í Eyjafirði, bankaritari í Sparisjóðnum, lærður bankamaður frá Noregi og Danmörku, framkvæmdastjóri Vélbátatrygginga Eyjafjarðar, f. 8. ágúst 1949 í Litla-Hvammi. Kona hans er Guðfinna Nývarðsdóttir húsfreyja, heilsuverndarhjúkrunarfræðingur, deildarstjóri við heilsugæsluna á Akureyri.
2. Sigurbjörg Sóley Ástvaldsdóttir húsfreyja á Hvolsvelli, þroskaþjálfi, f. 23. janúar 1951 í Litla-Hvammi. Maður hennar er Ágúst Ingi Ólafsson sveitarstjóri í Hvolhreppi, fjármálastjóri.
3. Sigurður Rúnar Ástvaldsson trésmiður í Reykjavík, tvíburi, f. 5. september 1956 í Sigtúni. Kona hans. (skildu), var Arna Guðlaug Albertsdóttir.
4. Finnbogi Arnar Ástvaldsson rafvirki á Hvolsvelli, tvíburi, f. 5. september 1956 í Sigtúni. Sambýliskona hans var Agnes Ólöf Thorarensen.
5. Ragnar Ástvaldsson bifreiðastjóri í Kópavogi, f. 20. apríl 1960 í Sigtúni. Kona hans er Guðrún Bergmann Magnúsdóttir.
6. Viðar Þór Ástvaldsson, verslunarstjóri á Selfossi, f. 20. desember 1965. Kona hans er Jóhanna Ósk Pálsdóttir. Barn Kristínar Oktavíu fyrir hjónaband er
7. Inga Jóhanna Arnórsdóttir, f. 26. janúar 1943 í Reykjavík. Hún býr í Svíþjóð. Maður hennar, (skildu), var Árni Sveinbjörn Árnason.

Myndasafn


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.