Ólafur Sigurðsson (Heimagötu 25)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ásgeir Sigurðsson frá Heimagötu 25, fæddist þar 28. október 1929.
Foreldrar hans voru Sigurður Ásgeir Gunnarsson kaupmaður, f. 18. febrúar 1902 í Vík í Mýrdal, d. 12. október 1941, og kona hans Sigríður Geirsdóttir frá Kanastöðum í A.-Landeyjum, húsfreyja, síðar saumakona í Reykjavík, f. þar 7. júlí 1907, d. 29. nóvember 1985.

Börn Sigríðar og Sigurðar:
1. Jóhanna Sigurðardóttir, f. 18. janúar 1927 í Hörgsholti, d. 12. janúar 2004. Maður hennar var Kristinn Óskar Guðmundsson frá Viðey, lögfræðingur, f. 2. nóvember 1924, d. 26. febrúar 2011.
2. Ólafur Ásgeir Sigurðsson skrifstofumaður, deildarstjóri, f. 28. október 1929 á Heimagötu 25. Kona hans var Kristín Margrét Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 14. maí 1930, d. 3. desember 2016.

Ólafur var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Ólafur var nær 12 ára.
Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur og bjó þar.
Ólafur hóf nám í Verslunarskólanum, en varð að hætta vegna langvarandi veikinda. Hann fór í verslunarskóla í Englandi 1950.
Ólafur vann á Tanganum í þrjú og hálft ár, hóf skrifstofustörf hjá Hamilton á Keflavíkurflugvelli og vann þar í eitt ár. Þá var hann starfsmaður, deildarstjóri sjódeildar hjá Almennum tryggingum og eftir samrunann hjá Sjóvá almennum í alls 40 ár.
Þau Margrét giftu sig 1952, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Heimagötu 25 og í Hergilsey við Kirkjuveg 70a í Eyjum, á Barónsstíg 49, á Brúnavegi 3, og í Hvassaleiti 56 í Reykjavík frá 2012.
Ólafur býr í Hvassaleiti 56.

I. Kona Ólafs, (1. júní 1952), var Kristín Margrét Guðjónsdóttir, f. 14. maí 1930, d. 3. desember 2016.
Börn þeirra:
1. Björg Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, kennari, f. 6. apríl 1952 í Reykjavík, býr í Bandaríkjunum. Maður hennar Guðmundur Þröstur Guðmundsson.
2. Sigurður Ásgeir Ólafsson trésmiður, f. 18. september 1954 í Reykjavík, ókvæntur.
3. Halldór Gunnar Ólafsson rafvirki, bankastarfsmaður, f. 16. júlí 1958 í Reykjavík, d. 18. september 2014. Fyrrum kona hans Jórunn Valdimarsdóttir.
4. Ólafur Kristinn Ólafsson sölustjóri, f. 18. apríl 1963 í Reykjavík. Kona hans Anna María Bjarnadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.