Íris Þórðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Íris Þórðardóttir, húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, framhaldsskólakennari, stjórnandi sjúkraliðabrautar Fjölbrautarskóla Suðurlands, fæddist 3. september 1964.
Foreldrar hennar Þórður Rafn Sigurðsson, frá Siglufirði, vélstjóri, skipstjóri, útgerðarmaður, rekur ferðafyrirtækið Ribssafari, f. 9. janúar 1943, og kona hans Ingigerður Reykjalín Eymundsdóttir, húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, útgerðarmaður, f. 1. mars 1942 í Eyjum.

Börn Ingigerðar og Þórðar:
1. Íris Þórðardóttir hjúkrunarfræðingur, kennari, stjórnandi sjúkraliðabrautar Fjölbrautarskóla Suðurlands, f. 3. september 1964. Maður hennar er Valur Örn Gíslason.
2. Eyþór Þórðarson skipstjóri, f. 14. júlí 1966. Fyrsta kona hans Margrét Helgadóttir, önnur kona hans Helga Vestmann. Kona hans er Helga Björk Georgsdóttir.
3. Ægir Þórðarson tölvufræðingur hjá Landsbanka Íslands, f. 10. júní 1973.

Þau Valur Örn giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa á Selfossi.

I. Maður Írisar er Valur Örn Gíslason, pípulagningameistari, vélvirkjameistari, f. 30. júlí 1965.
Börn þeirra:
1. Elva Dögg Valsdóttir, 13. desember 1985 í Eyjum.
2. Eydís Inga Valsdóttir, f. 15. febrúar 1990 í Eyjum.
3. Eysteinn Orri Valsson, f. 28. janúar 1992 í Eyjum.
5. Eiður Smári Valsson, f. 20. júní 1994 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.