Eydís Inga Valsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eydís Inga Valsdóttir, húsfreyja, verkefnastjóri fæddist 15. febrúar 1990 í Eyjum.
Foreldrar hennar Valur Örn Gíslason, pípulagningameistari, vélvirkjameistari, f. 30. júlí 1965, og kona hans Íris Þórðardóttir, hjúkrunarfræðingur, kennari, stjórnandi sjúkraliðabrautar Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, f. 3. september 1964.

Börn Írisar og Vals:
1. Elva Dögg Valsdóttir, 13. desember 1985 í Eyjum.
2. Eydís Inga Valsdóttir, f. 15. febrúar 1990 í Eyjum.
3. Eysteinn Orri Valsson, f. 28. janúar 1992 í Eyjum.
4. Eiður Smári Valsson, f. 20. júní 1994 í Eyjum.

Þau Aron Tommi giftu sig, hafa eignast tvö börn.

I. Maður Eydísar Ingu er Aron Tommi Skaftason, lífefnafræðingur hjá DeCode, f. 15. júní 1990. Foreldrar hans Björgvin Skafti Bjarnason, f. 23. ágúst 1960, og Camilla Maria Fors, f. 6. janúar 1967.
Börn þeirra:
1. Nökkvi Aronsson, f. 4. júní 2018.
2. Iðunn Aronsdóttir, f. 25. apríl 2021.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.