Árni Einarsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Árni Einarsson vinnumaður fæddist 15. júlí 1837 á Loftsölum í Mýrdal og lést 30. maí 1875.
Foreldrar hans voru Einar Jónsson bóndi á Loftsölum, f. 1790, d. 9. júlí 1859 á Loftsölum, og kona hans Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 10. september 1815 í Hrífunesi í Skaftártungu, á lífi 1873.

Árni var með foreldrum sínum til ársins 1859 og með móður sinni til 1862, en þá fluttist hann að Garðinum.
Hann var vinnumaður á Miðhúsum hjá Sesselju Helgadóttur ekkju 1864, hjá Helga Jónssyni þar 1865, hjá Erlendi Sigurðssyni á Fögruvöllum 1866-1867.
Árni var vinnumaður hjá Vigfúsi bróður sínum á Miðhúsum 1868-1869 og þar var Kristín móðir hans með honum.
1870-1871 var hann vinnumaður í Stóra-Gerði, en móðir hans var „sjálfrar sín “ í Götu.

Hann var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1872, á Löndum 1873, á Miðhúsum 1874 og þar lést hann 1875 úr lungnabólgu.
Árni var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.