Forsíða
|
Víglundur Þór Þorsteinsson
Víglundur Þór Þorsteinsson læknir fæddist 24. júlí 1934 og ólst upp í Eyjum. Hann lést 20. febrúar 2026. Á efri árum hefur hann m.a. fengist við að innfæra á Heimaslóð.is ýmsan fróðleik um Eyjar og Eyjafólk, m.a. Blik, Sögu Vestmannaeyja, Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, ritverk Árna Árnasonar símritara. Víglundur hefur auk þessa ritað meira en tíu þúsund æviskrár Eyjafólks á Heimaslóð og eru honum færðar kærar þakkir fyrir einstakt framlag til varðveislu sögu og menningar Vestmannaeyja. |
1973 Allir í bátana á Heimaslóð
Einstakt björgunarafrek á heimsvísu var þegar íbúar Vestmannaeyja voru fluttir á brott frá Heimaey 23.janúar 1973 Nú hafa verið skráðar upplýsingar með hvaða hætti íbúar flúðu Eyjuna eða alls, 5.049 manns, 2.630 karlar og 2.369 konur auk 50 ófæddra barna sem voru í móðurkviði þann 23.janúar 1973. Fólkið fór frá Eyjum með 58 bátum og skipum, flugi eða varð lengur í Eyjum þessa nótt. Að auki komu a.m.k. þrír bátar til Eyja um morguninn til að sækja fólk en fóru farþegalausir til baka. Skráð hefur verið hvar sérhver farþegi var búsettur á þeim tíma og með hvaða báti hann fór og hverjir voru í áhöfn þess báts auk þess hverjir fóru með flugi. Ingibergur Óskarsson hefur unnið þrekvirki við að safna upplýsingum um flóttann mikla frá Heimaey 23. janúar 1973 og eru upplýsingarnar nú aðgengilegar á 1973 Allir í bátana á Heimaslóð.
| |||
|
Mynd vikunnar
|
Grein vikunnar
| |||
|
Heimaslóð hefur nú 40.345 myndir og 21.602 greinar. Vinsamlegast sendið allar ábendingar og fyrirspurnir á netfangið heimaslod@vestmannaeyjar.is | ||||
