Steinunn Sigurðardóttir (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2013 kl. 19:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2013 kl. 19:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja á Þingeyri fæddist í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum 20. júní 1867 og lézt í Vesturheimi 9. nóvember 1966.
Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Pétursdóttir og Sigurður Sigurðsson þá bóndahjón í Búðarhóls-Austurhjáleigu.
Þau voru einnig foreldrar:
1. Elínar Sigurðardóttur húsfreyju í Ólafshúsum, fyrri konu Jóns Bergs eldri útvegsbónda.
2. Sigurðar Sigurðssonar formanns í Frydendal, sambýlismanns Önnu Sigríðar Árnadóttur móður Johnsensbræðra.
3. Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju í Lambhaga, konu Guðmundar Guðmundssonar sjómanns í Lambhaga.
4. Vigfúsar fóstra Þorsteins Þ. Víglundssonar.

I. Steinunn var búandi í Oddakoti í A-Landeyjum 1892-1894 með fyrri manni sínum Magnúsi Jónssyni til 1893, en Magnús drukknaði við Eyjar 25. marz 1893 og bjó Steinunn ekkja í Oddakoti næsta árið.
Hún var vinnukona í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum 1894-1897, húskona á Ljótarstöðum þar 1897-1899. Þá flutti hún til Eyja.
II. Síðari maður hennar var Jón Jónsson sjómaður.
Þau Jón eignuðust eitt barn, Magnús Júlíus sjómann í Eyjum, f. 1. júlí 1905, d. í Vesturheimi 1942.
Hjónin bjuggu í Lambhaga 1920.
Þau byggðu húsið Þingeyri 1921 og bjuggu þar til ársins 1924, er þau seldu húsið Sigurjóni Sigurðssyni og fluttust til Vesturheims.


Heimildir

  • Landeyingabók - A-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Óskar Pétur Friðriksson.
  • Pers.