Guðmundur Guðmundsson (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðmundur Guðmundsson


Guðmundur Guðmundsson sjómaður í Lambhaga, fæddist 10. júlí 1874 og drukknaði 10. janúar 1912.
Foreldrar hans voru Ragnhildur Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 19. nóvember 1846, d. 6. júlí 1896, og maður hennar Guðmundur Brandsson bóndi, steinsmiður, f. 4. desember 1846, d. 16. júlí 1928, síðar búandi hjón í Seli í A-Landeyjum.

Meðal systkina Guðmundar í Lambhaga var Geir á Geirlandi.

Guðmundur var háseti á v/b Íslandi hjá mági sínum Sigurði í Frydendal. Þann 10. janúar 1912 reri skipshöfnin út að bátnum á bóli til að aðgæta öryggi hans í ofveðri, sem geisaði. Á leiðinni út að bátnum fórst hún. Hana skipuðu, auk Sigurðar og Guðmundar, Magnús Ingimundarson á Hvoli, Einar Halldórsson í Sandprýði, Hans Einarsson og Vilhjálmur Jónsson frá Norðfirði. Öll líkin rak.

Kona Guðmundar var Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1874, d. 15. ágúst 1962.
Börn þeirra voru:
1. Andvana stúlka, f. 28. janúar 1908.
2. Sigríður Lilja Guðmundsdóttir, f. 30. ágúst 1911. Maður hennar George Hunt smiður í Winnipeg.
3. Ragnhildur Ásta Guðmundsdóttir ljósmóðir, f. 30. ágúst 1911, d. 17. mars 1995.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz 1952.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur Gunnarshólma 1999.
  • Manntal 1920.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.