„Steinunn Sigurðardóttir (Þingeyri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 17: Lína 17:


{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Landeyingabók - A-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
*Landeyingabók - A-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
*[[Óskar Pétur Friðriksson]].
*[[Óskar Pétur Friðriksson]].

Útgáfa síðunnar 10. mars 2014 kl. 13:32

Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja á Þingeyri fæddist í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum 20. júní 1867 og lézt í Vesturheimi 9. nóvember 1966.
Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Pétursdóttir og Sigurður Sigurðsson þá bóndahjón í Búðarhóls-Austurhjáleigu.
Þau voru einnig foreldrar:
1. Elínar Sigurðardóttur húsfreyju í Ólafshúsum, fyrri konu Jóns Bergs eldri útvegsbónda.
2. Sigurðar Sigurðssonar formanns í Frydendal, sambýlismanns Önnu Sigríðar Árnadóttur móður Johnsensbræðra.
3. Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju í Lambhaga, konu Guðmundar Guðmundssonar sjómanns í Lambhaga.
4. Vigfúsar fóstra Þorsteins Þ. Víglundssonar.

I. Steinunn var búandi í Oddakoti í A-Landeyjum 1892-1894 með fyrri manni sínum Magnúsi Jónssyni til 1893, en Magnús drukknaði við Eyjar 25. marz 1893 og bjó Steinunn ekkja í Oddakoti næsta árið.
Hún var vinnukona í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum 1894-1897, húskona á Ljótarstöðum þar 1897-1899. Þá flutti hún til Eyja.
II. Síðari maður hennar var Jón Jónsson sjómaður.
Þau Jón eignuðust eitt barn, Magnús Júlíus sjómann í Eyjum, f. 1. júlí 1905, d. í Vesturheimi 1942.
Hjónin bjuggu í Lambhaga 1920.
Þau byggðu húsið Þingeyri 1921 og bjuggu þar til ársins 1924, er þau seldu húsið Sigurjóni Sigurðssyni og fluttust til Vesturheims.


Heimildir